Beint í leiðarkerfi vefsins.
17. febrúar 2009
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað stýrihóp um velferðarvakt sem ætlað er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna. Hlutverk stýrihópsins er að stýra velferðarvaktinni og samhæfa upplýsingaöflun og tillögugerð. Áætlað er að ráðherra verði afhent áfangaskýrsla stýrihópsins um miðjan marsmánuð næstkomandi.
Lögð er áhersla á að stýrihópurinn leiti í starfi sínu eftir samráði við aðrar stofnanir og frjáls félagasamtök sem láta sig málefni fjölskyldna og einstaklinga varða, þar á meðal að stýrihópurinn standi fyrir reglulegum samráðsfundum með þessum aðilum.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið - Hafnarhúsinu við Tryggvagötu - 150 Reykjavík (Sjá kort) - Kt. 540169-4119
Sími: 545 8100 - Bréfasími: 552 4804 - Netfang: postur@fel.stjr.is - Aðgengisstefna - Ritstjórn