Félagsmálaráðuneytið

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Aðgerðaáætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis

Gerð aðgerðaáætlunarinnar byggði á tillögu félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra frá október 2005 um að hafin yrði vinna við gerð aðgerðaáætlunar vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis gegn konum og börnum. Áætlunin var unnin á vettvangi samráðsnefndar félagsmálaráðuneytis, dóms- og kirkjumálaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Við gerð áætlunarinnar var meðal annars höfð til hliðsjónar drög frjálsra félagasamtaka að aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem hafði verið send einstökum fagráðherrum í apríl 2005.

Meginmarkmið aðgerðaáætlunarinnar er að vinna gegn ofbeldi á heimilum og kynferðislegu ofbeldi sem beinist að konum og börnum sem og að bæta aðbúnað þeirra er orðið hafa fyrir ofbeldi eða eru í áhættuhópi hvað þetta varðar.

Aðgerðaáætlunin skiptist í tvo hluta:

  1. Aðgerðir vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis gegn börnum.
  2. Aðgerðir vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis gegn konum.

Í hvorum hluta fyrir sig eru eftirfarandi markmið höfð að leiðarljósi:

  • Auka fyrirbyggjandi aðgerðir sem stuðla að opinni umræðu um ofbeldi gegn börnum og kynbundnu ofbeldi og viðhorfsbreytingum í þjóðfélaginu.
  • Styrkja starfsfólk stofnana í því að sjá einkenni ofbeldis hjá börnum og kynbundins ofbeldis og koma þolendum til aðstoðar.
  • Tryggja einstaklingum sem eru þolendur ofbeldis á heimili eða kynferðislegs ofbeldis viðeigandi aðstoð.
  • Rjúfa vítahring ofbeldis með því að styrkja meðferðaúrræði fyrir gerendur.

Um er að ræða efnismikla aðgerðaáætlun sem felur í sér 37 aðgerðir. Hverri aðgerð er lýst sérstaklega ásamt tilgangi hennar. Einstökum ráðuneytum hefur verið falin ábyrgð á framkvæmd sérhverrar aðgerðar ásamt því að settur er fram tiltekinn tímarammi um framkvæmdina.

Skjal fyrir Acrobat ReaderAðgerðaáætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis (PDF)




Þú ert hér: Forsíða > Verkefni > Sérverkefni > Aðgerðaáætlun vegna ofbeldis ...

FEL

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

Verkefni

  • Aldraðir
  • Almannatryggingar
  • Barnaverndarmál
  • Fatlaðir
  • Félagsþjónusta sveitarfélaga
  • Fæðingar- og foreldraorlof
  • Flóttafólk
  • Greiðsluerfiðleikar
  • Húsnæðismál
  • Innflytjendur
  • Jafnréttismál
  • Vinnumál
  • Sérverkefni
    • Jafnrétti nú
    • Málefni fatlaðra til sveitarfélaga
    • Velferðarvaktin
    • Jafnréttisvaktin
    • Aðgerðaáætlun vegna ofbeldis ...
    • Evrópuár jafnra tækifæra
    • Þjónusta við fötluð börn og fullorðna
    • Straumhvörf - efling þjónustu við geðfatlaða
  • Eldra efni
  • Alþjóðlegt samstarf
  • Nefndir, ráð og stjórnir
  • Sjóðir
  • Ráðstefnur
  • Eyðublöð
  • Stofnanir
  • Kærunefndir

www.félagsmálaráðuneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Almennt
    • Skipulag
    • Starfsmenn
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Merki ráðuneytisins
    • Laus störf
    • Afgreiðsla
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Þingstörf
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni
    • Aldraðir
    • Almannatryggingar
    • Barnaverndarmál
    • Félagsþjónusta sveitarfélaga
    • Fæðingar- og foreldraorlof
    • Húsnæðismál
    • Jafnréttismál
    • Öll verkefni...
  • Útgáfa
    • Útgáfa
    • Útgefið efni eftir málaflokkum
    • Fréttir
    • Úrskurðir
  • Lög og reglugerðir
    • Lög, reglugerðir, reglur og samþykktir á sviði félags- og tryggingamálaráðuneytis flokkuð eftir málaflokkum ráðuneytisins
  • Aðrar vefsíður
    • Staðsetning
    • Aðgengisstefna
    • Ritstjórn
    • Efnisorð
    • Hafa samband
    • RSS þjónusta

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneyti
  • Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneyti
  • Félags- og tryggingamálaráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Heilbrigðisráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneyti
  • Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
  • Umhverfisráðuneyti
  • Utanríkisráðuneyti

Aðrir vefir stjórnarráðsins

  • Stjórnarráð Íslands
  • island.is
  • Brusselsetrið
  • 50 +

Tungumál

  • Enska

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • +
  • -
  • Nota mínar stillingar

Samskipti

Félags- og tryggingamálaráðuneytið - Hafnarhúsinu við Tryggvagötu - 150 Reykjavík (Sjá kort) - Kt. 540169-4119
Sími: 545 8100 - Bréfasími: 552 4804 - Netfang: postur@fel.stjr.is - Aðgengisstefna - Ritstjórn


Þetta vefsvæði byggir á Eplica