Beint í leiðarkerfi vefsins.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Mannréttindaskrifstofa Íslands standa saman að átakinu Jafnrétti nú! og er markmið átaksins að vinna gegn mismunun í samfélaginu.
Áhersla er lögð á að vekja almenning til vitundar um rétt allra til jafnra tækifæra í samfélaginu óháð uppruna, kynferði, aldri, fötlun, kynhneigð eða trú. Fordómar og misrétti hafa afdrifarík áhrif á þolendur. Mismunun leiðir til taps fyrir samfélagið allt þar sem sumir þegnar þess eru útilokaðir frá virkri þátttöku. Fjölbreytilegt samfélag er allra hagur og því er mikilvægt að vekja almenning til vitundar um jafnréttismál á breiðum grunni. Átakið samanstendur af ýmsum viðburðum og rannsóknum sem nánar er fjallað um á vef verkefnisins.
Átakið er í samstarfi við Öryrkjabandalagið, Þroskahjálp, Samtökin '78, Fjölmenningarsetrið, Alþjóðahúsið, Jafnréttisstofu og Kvenréttindafélag Íslands og er stutt af jafnréttis- og vinnumálaáætlun Evrópusambandsins, Progress.

Félags- og tryggingamálaráðuneytið - Hafnarhúsinu við Tryggvagötu - 150 Reykjavík (Sjá kort) - Kt. 540169-4119
Sími: 545 8100 - Bréfasími: 552 4804 - Netfang: postur@fel.stjr.is - Aðgengisstefna - Ritstjórn