Velferðarvaktin
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað stýrihóp um velferðarvakt sem ætlað er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna.
Jafnréttisvaktin
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum þann 10 febrúar 2009 að setja á fót vinnuhópur til að meta áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna. Hópurinn er skipaður af Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamálaráðherra.
Evrópuár jafnra tækifæra
Íslendingar taka virkan þátt í Ári jafnra tækifæra með öðrum Evrópuþjóðum. Markmiðið er að samfélagið verði umburðarlyndara og víðsýnna í lok ársins.
Brusselsetrið
Brusselsetrið er rekið af félags- og tryggingamálaráðuneytinu og er til upplýsingar um það sem efst er á baugi hverju sinni á vettvangi EES-samstarfsins sem varðar málaflokka félags- og tryggingamálaráðuneytisins.
Aðgerðaáætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis
Gerð aðgerðaáætlunarinnar byggði á tillögu félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra frá október 2005 um að hafin yrði vinna við gerð aðgerðaáætlunar vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis gegn konum og börnum.
Þjónusta við fötluð börn og fullorðna
Vinnan að stefnudrögunum hefur nú staðið yfir í tvö ár. Þegar í upphafi voru skipaðir starfshópar notenda, aðstandenda þeirra og starfsfólks í málaflokknum, alls 30 manns, sem lögðu grunn að verkefninu og hafa fylgst með því síðan.
50+
Árið 2005 skipaði félagsmálaráðherra sjö manna verkefnisstjórn sem ætlað er að stýra fimm ára verkefni sem hefur það meginmarkmið að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.
Straumhvörf - efling þjónustu við geðfatlaða
Vefsíðu þessari er ætlað að vera upplýsingaveita um verkefnið og framgang þess, auk þess að vera samráðsvettvangur vegna stefnumótunar í málefnum geðfatlaðra.
Jafnrétti í skólum
Á síðunni eru upplýsingar og góðar hugmyndir fyrir kynjameðvitaðar leiðbeiningar varðandi menntun og störf fyrir stráka og stúlkur. Tilgangurinn er að foreldrar, kennarar og ráðgjafar, sem eiga að ráðleggja ungmennum varðandi menntun og störf, geti hér fundið efni til umhugsunar og innblásturs.
Mansal
Á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Tallin 26. ágúst 2002 var ákveðið að skipa starfshóp er vinna skyldi gegn mansali („The Nordic Baltic Task Force against Trafficking in Human Beings“).
Eldri verkefni:
Efling sveitarstjórnarstigsins
Vefsíða þessi er upplýsingaveita um verkefnið og framgang þess en því lauk í október 2005.
Nefnd um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum
Konur og karlar hafa að mörgu leyti ólíkan bakgrunn, uppeldi og reynslu. Nefnd um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum starfaði frá árinu 1998 til 2003.
