Útgefið efni
  • Ofbeldi - ljósmæður

Rit um ofbeldi í nánum samböndum

6.1.2009

Í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar frá september 2006 um ofbeldi gegn konum hafa verið gefin út fræðslurit um ofbeldi gegn konum í nánum samböndum.

Fræðsluritin eru fimm talsins. Eitt þeirra fjallar á almennan hátt um ýmsar staðreyndir varðandi ofbeldi gegn konum í nánum samböndum, rannsóknir sem gerðar hafa verið, birtingarmyndir ofbeldisins og afleiðingar þess. Þetta rit er einkum ætlað til kennslu. Hin ritin fjögur eru skrifuð með það að markmiði að nýtast tilteknum stéttum í starfi. Ritin eru samsett þannig að í þeim er áðurnefnt efni sem ætlað er til kennslu, auk efnis fyrir starfsfólk félagsþjónustu, heilbrigðisstéttir, ljósmæður og lögreglu. Ritið er unnið á vegum nefndar um aðgerðir gegn ofbeldi í nánum samböndum sem skipuð er af félags- og tryggingamálaráðherra.

Ritin fimm eru hér birt í heild sinni.

Skjal fyrir Acrobat Reader Almennt efni (PDF)

Skjal fyrir Acrobat Reader Félagsþjónustan (PDF)

Skjal fyrir Acrobat Reader Ljósmæður (PDF)

Skjal fyrir Acrobat Reader Lögregla (PDF)

Skjal fyrir Acrobat Reader Starfsfólk heilbrigðiskerfisins (PDF)


  • Þeir sem vilja koma fram með athugasemdir eða fyrirspurnir varðandi ofangreind rit geta gert það með því að fylla út fyrirspurnarform ráðuneytisns.

Share/Save/Bookmark


Eldra efni

Yfirlit yfir eldra útgefið efni sem ekki er tiltækt á rafrænu sniði.

Aðgengismál

Ýmsar eldri PDF-skrár sem eru á vef félags- og tryggingamálaráðuneytis eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Vinsamlegast hafið samband við ráðuneytið (postur@fel.stjr.is) ef PDF-skrá er ekki aðgengileg og leitast verður við að finna viðunandi lausn.


Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica