Útgefið efni

Fréttabréf félagsmálaráðuneytisins

30.12.2006 : Fréttabréf 2006:1

Í Fréttabréfi félagsmálaráðuneytisins er meðal annars fjallað um innflytjendur og erlent launafólk hér á landi, stefnumótun í málefnum fatlaðra og átak í þjónustu við geðfatlaða, aðgerðir í jafnréttismálum, áhrif fækkunar sveitarfélaga á sveitarfélagaskipan og aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Lesa meira
 

1.11.2006 : 93. og 94. Alþjóðavinnumálaþingin í Genf 2005 og 2006

Skýrsla félagsmálaráðherra um þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) sem haldin voru árin 2005 og 2006.

Lesa meira
 
Magnús Stefánsson ásamt fulltrúum á blaðamannafundi

19.10.2006 : Niðurstöður rannsóknar um kynbundinn launamun og launamyndun

Félagsmálaráðherra kynnti í dag niðurstöður könnunar Capacent á kynbundnum launamun og launamyndun. Rannsóknin er liður í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum. Lesa meira
 

27.9.2006 : Íslenska sveitarstjórnarstigið - viðhorf sveitarstjórnar- og alþingismanna

Rannsókna­miðstöð Háskólans á Bifröst vann að beiðni félagsmálaráðuneytisins, vorið og sumarið 2006, rannsókn á viðhorfum sveitarstjórnarmanna og alþingismanna til framtíðar íslenska sveitar­stjórnar­stigsins. Lesa meira
 

6.9.2006 : Skýrsla Evrópuráðsins um hlutdeild notenda í einstaklingsmiðaðri félagslegri þjónustu

Bakgrunnur þessa verkefnis er umfangsmikið langtímastarf Evrópuráðsins varðandi borgaraleg réttindi. Þetta felur í sér Félagsmálasáttmála Evrópu og endurskoðaða sáttmálann og sérstaklega skýrsluna um aðgang að félagslegum réttindum í Evrópu ('Access to Social Rights in Europe') (2002). Lesa meira
 
Við viljum gera enn betur - jafnrétti varðar okkur öll

2.6.2006 : Fræðslubæklingur til nýrra sveitarstjórna um jafnréttismál

Félagsmálaráðuneytið og Jafnréttisstofa hafa sent öllum nýkjörnum sveitarstjórnum landsins fræðslubækling um jafnréttismál undir heitinu „Við viljum gera enn betur - jafnrétti varðar okkur öll“. Lesa meira
 

17.3.2006 : Áfangaskýrsla um aukna og bætta þjónustu við geðfatlaða

Áfangaskýrsla um aukna og bætta þjónustu við geðfatlaða liggur fyrir og var kynnt blaða- og fréttamönnum 15. mars 2006. Lesa meira
 

24.2.2006 : Velferðarþjónusta í dreifbýli

Félagsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun niðurstöðu nefndar um velferðarþjónustu í dreifbýli. Lesa meira
 

17.2.2006 : Skýrsla félagsmálaráðherra um sveitarstjórnarmál lögð fram á Alþingi

Miklar umræður fóru fram á Alþingi í gær um skýrslu félagsmálaráðherra um sveitarstjórnarmál. Er þetta í fyrsta skipti sem slík skýrsla er lögð fram um sveitarstjórnarmál á Alþingi. Skýrsla ráðherra er aðgengileg hér á vef ráðuneytisins. Lesa meira
 

30.1.2006 : Aðgengi allra að vefnum

Forsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn, þann 13. janúar sl., skýrslu um aðgengi allra að vefnum. Skýrslan er unnin af forsætisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti og eru þar lagðar fram tillögur um aðgerðir sem stuðla að því að fatlaðir og aðrir hópar sem gefa þarf sérstakan gaum í upplýsingasamfélaginu geti nýtt sér þjónustu á Netinu.

Lesa meira
 

Share/Save/Bookmark


Eldra efni

Yfirlit yfir eldra útgefið efni sem ekki er tiltækt á rafrænu sniði.

Aðgengismál

Ýmsar eldri PDF-skrár sem eru á vef félags- og tryggingamálaráðuneytis eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Vinsamlegast hafið samband við ráðuneytið (postur@fel.stjr.is) ef PDF-skrá er ekki aðgengileg og leitast verður við að finna viðunandi lausn.


Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica