Um vefinn
Aðgengisstefna félags- og tryggingamálamálaráðuneytisins
Stjórnarráð Íslands hefur einsett sér að gera stjórnarráðsvefinn aðgengilegan fötluðum. Stefnt er að því að allt efni á vefnum muni að minnsta kosti standast viðmiðunarreglur WCAG 1.0 af gerð A fyrir 1. júlí 2007*. Stjórnarráð Íslands mun endurskoða stefnu sína árlega í því skyni að uppfylla enn betur kröfur um aðgengi allra að vefnum. Einstök ráðuneyti geta hvert fyrir sig sett sér markmið um að ná tilteknu aðgengisstigi fyrr en kveður á um í sameiginlegri aðgengisstefnu fyrir stjórnarráðið og vísað í það á vef sínum. Vefstjórn stjórnarráðsins hefur það hlutverk að tryggja að stjórnarráðsvefurinn uppfylli ávallt sett markmið um aðgengi.
Síður á stjórnarráðsvefnum sem uppfylla aðgengisstefnu eru merktar sérstaklega með táknmynd W3C sem komið er fyrir neðst í vinstri dálki og krækt í síðu þar sem fram kemur fyrir hvað táknmyndin stendur.
Á stjórnarráðsvefnum er í ýmsum tilvikum vísað á vefi stofnana, félagasamtaka eða fyrirtækja. Aðgengisstefna stjórnarráðsvefsins nær eingöngu til hans en ekki þeirra vefja sem vísað er á.
Efni frá þriðja aðila sem birt er á vefjum ráðuneyta skal uppfylla kröfur um aðgengi fyrir alla. Þá verður farið fram á að hugbúnaðarsalar sem ráðuneytin skipta við geri grein fyrir því hvernig búnaður þeirra tekur tillit til aðgengismála. Jafnframt skal tryggt að starfsmenn hafi aðgang að þeim hugbúnaði sem nauðsynlegur er til að gera efni aðgengilegt.
Séð verður til þess að starfsfólk fái þá þjálfun sem til þarf miðað við starf sitt og hlutverk. Boðið verður upp á endurmenntun eftir því sem kröfur um aðgengi breytast eða ný tækni kemur fram. Þetta verður meðal annars gert með því að koma upp sérstakri upplýsingasíðu um aðgengismál á UT-vefnum; http://utv.is/adgengi.
* Sumt eldra efni (eldra en 2005), t.d. ýmsar PDF- og DOC-skrár, getur verið þannig frágengið að erfitt muni reynast að gera það aðgengilegt að fullu. Viðmiðunarreglur WCAG 1.0 eru frá árinu 1999. Unnið hefur verið að endurskoðun á reglunum að undanförnu undir vinnuheitinu WCAG 2.0. Stefnt er að því að þær taki gildi í lok ársins 2006 eða í byrjun 2007 og verða þær þá um leið viðmiðunarreglur stjórnarráðsvefs.
