Fréttalisti Jöfnunarsjóðs frá 1999-2007

Reglur um ráðstöfun 700 millj. kr. aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2006

30.8.2006

Að tillögu tekjustofnanefndar frá 17. mars 2005 greiðist árlega sérstakt 700 milljón króna aukaframlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árunum 2006–2008. Framlaginu er ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir sérstakt viðbótarframlag vegna þróunar í rekstrarumhverfi þeirra og erfiðra ytri aðstæðna.

Í samræmi við ákvæði fjárlaga fyrir árið 2006 hefur félagsmálaráðherra, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, gefið út reglur um ráðstöfun 700 m.kr. aukaframlagsins á árinu 2006 og skiptist framlagið sem hér segir:

a) Varið skal 350 m.kr. til sveitarfélaga þar sem íbúum fækkaði árin 2001-2005. Við úthlutunina skal byggja á upplýsingum frá Þjóðskrá um endanlegan íbúafjölda sveitarfélaga árin 2000-2004 og bráðabirgðatölum um íbúafjölda sveitarfélaga 1. desember 2005. Einungis kemur til úthlutunar framlags samkvæmt þessari grein ef hlutfallsleg fækkun íbúa hefur verið umfram 1,5% á tímabilinu.  Þó skal ekki greiða framlag til sveitarfélaga þar sem fækkun íbúa er ekki umfram níu íbúa á tímabilinu.

b) Varið skal 350 m.kr. til sveitarfélaga þar sem hlutfallsleg hækkun útsvarsstofns milli áranna 2000 og 2005 er lægri en hlutfallsleg hækkun ársmeðaltals launavísitölu fyrir sama tímabil.  Við útreikning  framlagsins skal byggt á upplýsingum frá Ríkisskattstjóra um endanlegan álagningarstofn útsvars árin 2000-2005, upplýsingum frá Hagstofu Íslands um ársmeðaltal launavísitölu árin 2000-2005 og upplýsingum úr Þjóðskrá um endanlegan íbúafjölda 1. desember 2005.

Einungis kemur til úthlutunar framlags samkvæmt þessum reglum ef heimild sveitarfélags til útsvarsálagningar fyrir tekjuárið 2006 er fullnýtt af sveitarstjórn.

Skjal fyrir Acrobat ReaderReglur nr. 723/2006 um ráðstöfun 700 millj. kr. aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2006

Úthlutun framlags vegna íbúafækkunar

Félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun 350 m.kr. framlags til sveitarfélaga vegna íbúafækkunar á árunum 2001–2005 á grundvelli reglnanna nr. 723/2006 og kemur framlagið til greiðslu 1. september nk.

Úthlutun 350 m.kr. framlags vegna þróunar útsvarsstofns sveitarfélaga mun fara fram í desember nk. þegar endanlegur útsvarsstofn fyrir árið 2005 liggur fyrir og kemur framlagið til greiðslu fyrir áramót.

Skjal fyrir Acrobat ReaderÚthlutun framlags vegna íbúafækkunar árin 2001–2005




Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fluttist til samgönguráðuneytis um áramótin 2007/2008.

Heimasíða Jöfnunarjsóðs á vef samgönguráðuneytisins.

Fréttir Jöfnunarsjóðs frá 1. janúar 2008.


Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica