Framkvæmdasjóður fatlaðra
Framkvæmdasjóður fatlaðra er stofnaður með lögum nr. 41/1983 og er í vörslu félags- og tryggingamálaráðuneytis og annast stjórnarnefnd stjórn sjóðsins, sbr. 4. gr. Framkvæmdasjóði er ætlað að fjármagna stofnkostnað þjónustustofnana og heimila fatlaðra sem eru á vegum ríkisins, styrki til félagslegra íbúða og styrki til lagfæringar aðgengis á opinberum byggingum.
Tekjur Framkvæmdasjóðs fatlaðra eru:
- Framlag ríkissjóðs samkvæmt ákvörðun Alþingis í fjárlögum hvers árs.
- Frjáls framlög og aðrar tekjur er kunna að falla.
Stjórnarnefnd málefna fatlaðra
Stjórnarnefnd málefna fatlaðra er fjölskipað sjórnvald skipað af félags- og tryggingamálaráðherra til fjögurra ára í senn.
Fimm fulltrúar eiga sæti í stjórnarnefnd. Öryrkjabandalag Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp og Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefna einn fulltrúa hver. Ráðherra skipar tvo án tilnefningar, þar af annan formann. Þegar stjórnarnefnd fjallar um umsóknir og úthlutanir úr Framkvæmdasjóði fatlaðra skal fulltrúi tilnefndur af fjárlaganefnd Alþingis taka sæti í nefndinni.
Hlutverk stjórnarnefndar er eftirfarandi:
- Vera félags- og tryggingamálaráðuneyti til ráðgjafar um málefni fatlaðra.
- Gera tillögur til félags- og tryggingamálaráðherra um sérhæfða þjónustu við fatlaða á landsvísu.
- Hafa á hendi stjórn Framkvæmdasjóðs fatlaðra.
Heimilisfang sjóðsins er:
Framkvæmdasjóður fatlaðra
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu
150 REYKJAVÍK
Sími: 545 8100
Bréfasími: 552 4804
