Sjóðir
Framkvæmdasjóður aldraðra
Framkvæmdasjóður aldraðra starfar á grundvelli laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 og er í vörslu félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um land allt.
Meira...
Framkvæmdasjóður fatlaða
Framkvæmdasjóður fatlaðra, er stofnaður með lögum nr. 41/1983 og er í vörslu félagsmálaráðuneytis og annast stjórnarnefnd stjórn sjóðsins, sbr. 4. gr. Framkvæmdasjóði er ætlað að fjármagna stofnkostnað þjónustustofnana og heimila fatlaðra sem eru á vegum ríkisins, styrki til félagslegra íbúða og styrki til lagfæringar aðgengis á opinberum byggingum.
Meira...
Varasjóður húsnæðismála
Varasjóður húsnæðismála var stofnaður með breytingu á lögum um húsnæðismál nr. 44/1998. Breyting laganna byggðist á samkomulagi milli ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 4. apríl 2002. Með stofnun hins nýja sjóðs er Varasjóður viðbótarlána lagður niður og verkefni hans flutt til hins nýja sjóðs. Til viðbótar þeim verkefnum mun sjóðurinn veita framlög til sveitarfélaga vegna félagslegra eignar- og leiguíbúða samkvæmt nánari reglum, veita ráðgjöf og leiðbeiningar um rekstrarform félagslegra leiguíbúða og sjá um upplýsingavinnslu og úttekt á árangri af verkefnum sjóðsins.
Meira...
