Skipurit félags- og tryggingamálaráðuneytisins
Félags- og tryggingamálaráðuneytið skiptist í þrjú fagsvið: velferðarsvið, tryggingasvið og jafnréttis- og vinnumálasvið, og tvö stoðsvið: stjórnsýslu- og mannauðssvið og fjármálasvið. Fagsvið ráðuneytisins eiga að sjá til þess að ávallt sé unnið faglega að undirbúningi mála og að þekking starfsmanna sé nýtt og henni viðhaldið. Stoðsvið ráðuneytisins eiga að sjá til þess að ávallt séu til staðar stjórnunar- og fjárhagslegar upplýsingar til undirbúnings og stuðnings við ákvarðanatöku hjá ráðuneytinu og stofnunum þess eftir því sem við á.
Markmiðið með þessu stjórnskipulagi er að treysta stefnumótun og samræma aðgerðir og vinnubrögð við framkvæmd stefnu ráðuneytisins og ráðherra. Jafnframt felur stjórnskipulagið í sér eflingu á innri starfsemi ráðuneytisins með áherslu á markvissa stjórnun.
Skipurit félags- og tryggingamálaráðuneytisins
Sameiginleg verkefni sviða
Hvert svið ráðuneytisins annast skilgreind verkefni á sviði þeirra málaflokka sem undir það heyrir, eins og rakið er í umfjöllun um hvert og eitt þeirra hér á eftir. Ákveðin verkefni eru hins vegar hluti af verksviði þeirra allra, svo sem:
- samskipti og faglegt eftirlit með stofnunum ráðuneytisins
- samskipti við hagsmunaaðila
- alþjóðleg samskipti
- undirbúningur og vinna að stefnumótun
- undirbúningur löggjafar og reglugerða
- vinna og undirbúningur vegna mála sem unnin eru í starfshópum og nefndum sem ráðherra skipar
- fagleg ráðgjöf við ráðherra, auk ráðgjafar við önnur ráðuneyti og stofnanir
Verkefni félags- og tryggingamálaráðuneytisins eru skv. 4. gr. reglugerðar um Stjórnarráð Íslands, nr. 177/2007.
