Samráðshópur vegna þjónustu við fatlaða
Hlutverk samráðshópsins er að tryggja gagnkvæma upplýsingamiðlun milli verkefnisstjórnar um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og fulltrúa starfsmanna um stöðu verkefnisins hverju sinni og þau viðfangsefni sem framundan eru. Jafnframt að kortleggja starfskjör og réttindi þeirra starfsmanna sem tilfærsla málaflokksins nær til og fjalla um aðferðir við tilflutning starfsmanna frá ríki til sveitarfélaga.
Samráðshópinn skipa
- Einar Njálsson, skipaður af félags- og tryggingamálaráðherra, formaður
- Árni Stefán Jónsson, tiln. af SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu
- Salóme Þórisdóttir, tiln. af Þroskaþjálfafélagi Íslands
- Kristín Á. Guðmundsdóttir, tiln. af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
- Sverrir Óskarsson, tiln. af Bandalagi háskólamanna
- Helga Jóhannesdóttir, tiln. af starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis
- Inga Rún Ólafsdóttir, tiln. af Launanefnd sveitarfélaga
- Signý Jóhannesdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
- Elín Björg Jónsdóttir, tiln. af Samfloti og Kili
- Kristín Þóra Harðardóttir, tiln. af Reykjavíkurborg
Samráðshópurinn var skipaður 8. apríl 2009.
