Nefndir, ráð og stjórnir

Undirnefnd um öldrunarmál

Nefndin mun fjalla um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði þjónustu við aldraða. Nefndin starfar undir stjórn verkefnisstjórnar og fjallar um þann þátt öldrunarþjónustu sem heyrir undir félags- og tryggingamálaráðuneytið. Meginverkefni undirnefndarinnar er að greina þjónustuþörf í málefnum aldraðra og meta þá þjónustuþætti sem sveitarfélög taka við. Einnig fjallar nefndin eftir þörfum um aðra faglega þætti öldrunarþjónustu sem tengjast yfirfærslu þjónustunnar til sveitarfélaga.

Þess er vænst að nefndin skili tillögum til verkefnisstjórnarinnar um breytingar á verkaskiptingu fyrir 1. september 2008 og er gert ráð fyrir að nefndin hagi störfum í samræmi við það.

Undirnefndina skipa

  • Lára Björnsdóttir, skipuð af félags- og tryggingamálaráðherra, formaður
  • Ellert B. Schram, skipaður án tilnefningar
  • Salóme Þorkelsdóttir, skipuð án tilnefningar
  • Hanna Birna Kristjánsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Guðmundur R. Gíslason, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Rún Halldórsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Helgi K. Hjálmsson, tiln. af Landssambandi eldri borgara
  • Eyþór Benediktsson, tiln. af fjármálaráðuneyti

    

Undirnefndin var skipuð 18. mars 2008.







Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica