Nefndir, ráð og stjórnir
Verkefnisstjórn um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði velferðarmála
Meginverkefni verkefnisstjórnar er að fjalla um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði velferðarmála. Verkefnisstjórnin skal einnig stýra vinnu tveggja nefnda sem fjalla eiga um verkaskiptingu á sviði málefna fatlaðra og þjónustu við aldraða.
Verkefnisstjórnina skipa
- Einar Njálsson, sérfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneyti, formaður
- Lúðvík Geirsson, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Stella Kristín Víðisdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Sigrún Björk Jakobsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Hlynur Hreinsson, tiln. af fjármálaráðuneyti
- Einar Jón Ólafsson, tiln. af heilbrigðisráðuneyti
- Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, tiln. af samgönguráðuneyti
- Guðmundur Magnússon, tiln. af Öryrkjabandalagi Íslands
- Gerður Aagot Árnadóttir, tiln. af Landssamtökunum Þroskahjálp
- Þór G. Þórarinsson, skipaður af félags- og tryggingamálaráðherra
Verkefnisstjórnin var skipuð 23. mars 2007.
