Starfshópur um notendastýrða og einstaklingsmiðaða þjónustu
Hlutverk starfshópsins er að fjalla sérstaklega um notendastýrða og einstaklingsmiðaða þjónustu sem gera á fólki með fötlun kleift að vera heima á heimilum sínum og gefa möguleika á virkri samfélagsþátttöku. Slík einstaklingsbundin þjónusta yrði þá ekki bundin stofnunum. Starfshópurinn skal skoða kosti og galla notendastýrðrar þjónustu og tengsl hennar við þá þjónustu sem þegar er í boði. Starfshópnum er ætlað að koma með tillögur að útfærslu og áherslur að slíkri þjónustu.
Starfshópinn skipa
-
Þór Garðar Þórarinsson, skipaður af félags- og tryggingamálaráðherra, formaður
-
Sigríður Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri, skipuð af félags- og tryggingamálaráðherra
-
Guðjón Sigurðsson, tiln. af Öryrkjabandalagi Íslands
-
Jarþrúður Þórhallsdóttir, tiln. af Landssamtökunum Þroskahjálp
Starfshópurinn var skipaður 3. júlí 2006.
