Vinnumarkaðsráð Vesturlands
Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar félags- og tryggingamálaráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð skulu tveir ráðsmanna tilnefndir af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir ráðsmanna tilnefndir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt skal einn ráðsmanna tilnefndur af menntamálaráðherra, einn tilnefndur af heilbrigðisráðherra og einn tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði. Félags- og tryggingamálaráðherra skipar formann og varaformann vinnumarkaðsráðs úr hópi þeirra sem tilnefndir hafa verið sem aðalmenn.
Vinnumarkaðsráðið skipa
- Bjarki Þorsteinsson, tiln. af Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, formaður
- Vilhjálmur Birgisson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
- Valdimar Þorvaldsson, tiln. af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
- Guðjón Brjánsson, tiln. af heilbrigðisráðuneyti
- Inga Dóra Halldórsdóttir, tiln. af menntamálaráðuneyti, varaformaður
- Guðmundur Smári Guðmundsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Pétur Geirsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
