Vinnumarkaðsráð Norðurlands eystra
Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar félags- og tryggingamálaráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð skulu tveir ráðsmanna tilnefndir af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir ráðsmanna tilnefndir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt skal einn ráðsmanna tilnefndur af menntamálaráðherra, einn tilnefndur af heilbrigðisráðherra og einn tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði. Félags- og tryggingamálaráðherra skipar formann og varaformann vinnumarkaðsráðs úr hópi þeirra sem tilnefndir hafa verið sem aðalmenn.
Vinnumarkaðsráðið skipa
- Hanna Rósa Sveinsdóttir, tiln. af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, formaður
- Þorsteinn E. Arnórsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
- Aðalsteinn J. Halldórsson, tiln. af Eyþingi
- Jón Helgi Björnsson, tiln. af heilbrigðisráðuneyti, varaformaður
- Soffía Gísladóttir, tiln. af menntamálaráðuneyti
- Ásgeir Magnússon, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Katrín Dóra Þorsteinsdóttir, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
