Fjármálalegar upplýsingar ráðuneytanna - Ríkiskassinn.is

15.1.2008 Félags- og tryggingamálaráðuneyti Félags- og tryggingamálaráðuneyti

N/A

Félags- og tryggingamálaráðuneyti 2010, 27,8%Heildargjöld félags- og tryggingamálaráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2010 eru 128,8 milljarðar króna eða 27,8% af heildargjöldum ráðuneyta.

Útgjaldaheimildir A-hluta ríkissjóðs eru 560,7 milljarðar króna í fjárlögum fyrir árið 2010 og af þeim eru útgjaldaheimildir ráðuneyta 462.9 milljarðar.

Málefni
Félags- og tryggingamálaráðuneytið fer með mál er varða:

A. Velferðar- og fjölskyldumál, þar á meðal:

  1. Félagsþjónustu sveitarfélaga.
  2. Málefni fatlaðra.
  3. Barnavernd.
  4. Málefni aldraðra.
  5. Uppbyggingu og öldrunarþjónustu á hjúkrunarheimilum.
  6. Lífeyristryggingar almannatrygginga og félagslega aðstoð.
  7. Málefni langveikra barna og alvarlega fatlaðra barna.

B. Húsnæði, þar á meðal:

  1. Íbúðalánasjóð og varasjóð húsnæðismála.
  2. Húsaleigumál, þ.m.t. stuðningsaðgerðir við uppbyggingu félagslegra leiguíbúða á vegum sveitarfélaga og félagasamtaka og húsaleigubætur.
  3. Húsnæðissamvinnufélög, byggingarsamvinnufélög og fjöleignarhús.

C. Vinnumarkað, þar á meðal:

  1. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði, s.s. orlof, starfsmenntun í atvinnulífinu og samskipti við aðila vinnumarkaðarins.
  2. Félagsdóm.
  3. Sáttastörf í vinnudeilum.
  4. Aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
  5. Vinnumarkaðsaðgerðir, þ. á m. vinnumiðlun, mat á vinnufærni atvinnuleitenda og skipulag vinnumarkaðsúrræða.
  6. Atvinnuleysistryggingar.
  7. Málefni innflytjenda.
  8. Atvinnuréttindi útlendinga.
  9. Ábyrgð á launum við gjaldþrot.
  10. Fæðingar- og foreldraorlof.

Skipting fjárveitingar - í milljónum króna
Fjárveitingar til helstu verkefna félags- og tryggingamálaráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2010 eru eftirfarandi:

Almannatryggingar
60.374
46,9%
Vinnumál
39.985
31,0%
Málefni aldraðra
14.256
11,1%
Málefni fatlaðra
11.171
8,7%
Málefni barna
964
0,7%
Stjórnsýslustofnanir
566
0,4%
Annað
566
0,4%
Ráðuneyti
481
0,4%
Húsnæðismál
466
0,4%
Samtals
128.828
100%

Ítarefni

Lesa meira
 

Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica