Jafnréttisþing 16. janúar 2009

Í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica klukkan 9 til 17.
Á jafnréttisþinginu verður fjallað um fjölmargar hliðar jafnréttisbaráttunnar, svo sem launajafnrétti kynjanna, kynbundið ofbeldi, jafnrétti í atvinnulífi, karla og jafnrétti og jafnréttisstarf í skólum. Auk þess verða drög að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum kynnt á þinginu, en tilgangur þess er meðal annars að gefa almenningi og fulltrúum stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka kost á að skila inn hugmyndum og ábendingum vegna framkvæmdaáætlunarinnar.
Þingið verður öllum opið, en samkvæmt lögum skal sérstaklega boða til þess alþingismenn, fulltrúa stofnana ríkis og sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðar og fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem hafa jafnréttismál á stefnuskrá sinni.
- Dagskrá jafnréttisþings (DOC)
- Fyrirlesarar
- Glærur frá þinginu
- Framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum til umræðu
Jafnréttisþing
Föstudaginn 16. janúar á Nordica Hilton
Þingstjórar:
Sigtryggur Magnason rithöfundur og Þóranna Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs Auðar Capital
09.00 – 09.15 Hildur Jónsdóttir formaður Jafnréttisráðs: Setning
09.15 – 09.45 Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra: Skýrsla um stöðu og þróun í jafnréttismálum og drög að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum
09.45 – 10.25 Peter Tai Christensen embætti umboðsmanns jafnréttis í Svíþjóð: Milljónaverkefnið sænska
10.25 – 11.00 Kaffi
11.00 - 11.20 Þórólfur Árnason forstjóri Skýrr: Ávinningur af jafnrétti í fyrirtækjum - leiðir og aðferðir
11.20 – 11.40 Ólafur Stephensen ritstjóri Morgunblaðsins: Skipta útrásarvíkingar um bleiur?
11.40 – 12.00 Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu: Jafnrétti kynjanna – lúxus eða þjóðhagsleg nauðsyn?
12.00 – 13.00 Hádegisverður
13.00 – 14.00 Heyrsla: Hvernig tryggjum við jafnrétti í uppbyggingu til framtíðar?
Þátttakendur:
- Margrét Pála Ólafsdóttir frkvstj. Hjallastefnunnar
- Hrafnhildur Stefánsdóttir yfirlögfræðingur SA
- Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ
- Sabine Leskopf formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna
- Margrét Kristmannsdóttir frkvstj. og formaður FKA
- Elín Sigfúsdóttir bankastjóri Landsbankans
- Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir frkvstj. Unifem
- Irma Erlingsdóttir forstöðukona RIKK
Stjórnun: ráðstefnustjórar
14.00 - 15.20 Málstofur
15.20 - 15.40 Kaffi
15.40 - 16.20 Málstofustjórar: Niðurstöður úr málstofum
16.20 – 16.50 Forystumenn stjórnmálaflokkanna: Hver eru brýnustu verkefnin í jafnréttisbaráttunni og hvernig ætla ég að beita mér fyrir þeim?
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins
- Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna
- Helga Sigrún Harðardóttir alþingismaður, Framsóknarflokki
- Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins
- Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar
16:50 – 17.00 Hildur Jónsdóttir formaður Jafnréttisráðs: Lokaávarp og slit
Málstofur:
Málstofa 1: Kynin í kreppunni og verkefni stjórnvalda
- Ingibjörg Elíasdóttir lögfræðingur á Jafnréttisstofu: Framkvæmdaáætlun sem tæki stjórnvalda
- Silja Bára Ómarsdóttir forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar HÍ: Sér markaðurinn um jafnréttið núna? Kynjajafnrétti á krepputímum
- Guðný Björk Eydal dósent í félagsráðgjöf við HÍ: Velferðarkerfið og þýðing þess fyrir jafnréttið
Málstofustjóri: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent í mannauðsstjórnun
Ritari: Halldóra Friðjónsdóttir þáttagerðarmaður
Málstofa 2: Aðgerðir til að draga úr launamun kynja
- Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur Félagsvísindastofnun HÍ: Kynning á launakönnun Félagsvísindastofnunar í ljósi annarra launakannana
- Lára V. Júlíusdóttir hrl.: Jafnrétti kreppunnar: Duga tækin til að veita konum vernd?
- Ólöf Nordal alþingismaður: Launajafnrétti hjá ríkinu – leiðir til árangurs
- Jón Sigurðsson hagfræðingur: Framkvæmd jafnlaunastefnu – álit jafnlaunahópsins
Málstofustjóri: Prof. Dr. Jur. Herdís Þorgeirsdóttir
Ritari: Maríanna Traustadóttir jafnréttisfulltrúi ASÍ
Málstofa 3: Kynbundið ofbeldi
- Ragnheiður Bragadóttir lagaprófessor: Þróun dóma vegna kynferðisbrotakafla hegningarlaga
- Ingólfur V. Gíslason lektor við HÍ: Ofbeldi í nánum samböndum
- Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræðingur: Rannsókn á ofbeldi
- Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta: Hver ættu að vera verkefni stjórnvalda í dag?
Málstofustjóri: Andrés Ragnarsson sálfræðingur
Ritari: Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi
Málstofa 4: Konur sem frumkvöðlar í atvinnulífi
- Bergþóra Guðnadóttir, eigandi Farmers Market: Hönnun og arfleifðin
- Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis: Í gegnum ölduna
- Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital: Saga Auðar
Málstofustjórar: Inga Björg Hjaltadóttir hdl. og Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir mannauðsráðgjafi
Ritari: Hörður Vilberg verkefnastjóri SA
Málstofa 5: Karlmennska á krossgötum
- Þóra Kristín Þórsdóttir: Hinn íslenski húsbóndi – vinnusamur og gamaldags
- Arnar Gíslason kynjafræðingur og jafnréttisfulltrúi HÍ: Að virkja karla í jafnréttisbaráttunni: Nokkur orð um töfralausnir og erfiðar fæðingar
- Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður: Eru forsjár- og umgengnismál hluti jafnréttisumræðunnar?
- Gunnar Hersveinn rithöfundur: Er siðferði kynjað?
Málstofustjóri: Tryggvi Hallgrímsson sérfræðingur á Jafnréttisstofu
Ritari: Hugrún Hjaltadóttir sérfræðingur á Jafnréttisstofu
Málstofa 6: Jafnrétti í skólastarfi
- Arnfríður Aðalsteinsdóttir verkefnisstjóri á Jafnréttisstofu: Verkefnið Jafnréttisfræðsla í skólum
- Ásdís Olsen aðjúnkt við HÍ: Lífsleikni - jafnrétti. Hagnýtar aðferðir til að skilja sjálfan sig og samfélagið
- Ingólfur Ásgeir Jóhannsson prófessor HA: Skólastarf með gleraugum kynjafræðinnar
- Þórdís Þórðardóttir lektor við HÍ: Jafnrétti og kennaramenntun
Málstofustjóri: Hanna Björg Vilhjálmsdóttir félagsfræðingur
Ritari: Ingi Valur Jóhannsson deildarstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneyti
