Magnús Stefánsson
Magnús Stefánsson
Félagsmálaráðherra 15. júní 2006–24. maí 2007
Fæddur í Reykjavík 1. október 1960.- Foreldrar Magnúsar eru Stefán Jóhann Sigurðsson, f. 17. september 1937, og k. h. Guðrún Alexandersdóttir, f. 14. ágúst 1935.
- Maki Magnúsar er Sigrún Drífa Óttarsdóttir, f. 9. júní 1965, bankastarfsmaður. Börn þeirra eru: Guðrún fædd 1987 og Guðmundur fæddur 1991.
Menntun:
Samvinnuskólapróf 1980. Stúdentspróf Samvinnuskóla 1987. Rekstrarfræðapróf Samvinnuháskólanum 1990.
Starfsferill:
- Starfsmaður búvörudeildar SÍS 1980–1981. Kennari við Grunnskóla Ólafsvíkur 1981–1982. Bæjarritari í Ólafsvík 1982–1985. Sjómennska 1987–1988. Sveitarstjóri í Grundarfirði 1990–1995. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Selfossi 1999–2001.
- Í héraðsnefnd Snæfellinga 1990–1995, formaður 1991–1995. Í stjórn Hraðfrystihúss Grundarfjarðar hf. frá 1992–1995 og í stjórn Fiskmarkaðar Breiðafjarðar hf. 1992–1996. Í atvinnumálanefnd Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi 1994–1995. Í stjórn Pósts og síma hf. 1996–1998, í stjórn Landssíma Íslands hf. 1998–2002. Í stjórn Rariks 1997–1999. Sat sex þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1995–1999.
Önnur störf:
- Alþingismaður Vesturlandskjördæmis 1995–1999 og 2001–2003, alþingismaður Norðvesturkjördæmis síðan 2003 fyrir Framsóknarflokkinn.
- Varaþingmaður Vesturlandskjördæmis október 2000 og janúar–febrúar 2001.
- Sat í samgöngunefnd 1995–1999 og 2001–2003 og 2004–2006, landbúnaðarnefnd 1995–1999 og 2003–2006, félagsmálanefnd 1995–1999 og 2001–2003, utanríkismálanefnd 2001–2004 og 2006 (varaformaður 2001–2003 og 2006), heilbrigðis- og trygginganefnd 2001, umhverfisnefnd 2001–2003 (formaður) og 2004–2005, fjárlaganefnd 2003–2006 (formaður) og kjörbréfanefnd 2003–2006.
- Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 1995–1999, Íslandsdeild ÖSE-þingsins 2001–2003 (formaður), Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um Norðurskautsmál 2002–2006, Íslandsdeild NATO-þingsins 2003–2006.
- Félagsmálaráðherra 15. júní 2006–24. maí 2007.
