Vinnueftirlit ríkisins
Almenn vinnulöggjöf heyrir undir félagsmálaráðuneytið, sem fer með yfirstjórn þessa málaflokks en undirstofnanir ráðuneytisins, Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun, fara með framkvæmd einstakra málaflokka.
Helstu verkefni Vinnueftirlitsins eru að leiðbeina fyrirtækjum og stofnunum um hvað þurfi að bæta í vinnuumhverfi og veita ráðgjöf varðandi vinnuvernd. Vinnueftirlit ríkisins hefur eftirlit með að vinnuvernarlögunum, reglum og reglugerðum sé framfylgt.

