Vinnumálastofnun
Almenn vinnulöggjöf heyrir undir félagsmálaráðuneytið, sem fer með yfirstjórn þessa málaflokks en undirstofnanir ráðuneytisins, Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun, fara með framkvæmd einstakra málaflokka.
Helstu verkefni stofnunarinnar eru:
- Að hafa eftirlit með svæðisvinnumiðlunum og samræma starfsemi þeirra.
- Að veita starfsfólki svæðisvinnumiðlana faglega aðstoð og fræðslu.
- Að afla upplýsinga frá svæðisvinnumiðlunum um atvinnuástand, atvinnuleysi og atvinnuhorfur.
- Að vinna úr upplýsingum frá svæðisvinnumiðlunum og koma niðurstöðum, ábendingum og tillögum um vinnumarkaðsaðgerðir á framfæri við stjórn stofnunarinnar.
- Að fylgjast með þróun erlendis í vinnumarkaðsmálum og miðla upplýsingum um hana til hlutaðeigandi aðila.
- Að miðla í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar upplýsingum um vinnumarkaðsmál hér á landi til erlendra aðila.
- Að annast sjóðsvörslu, reikningshald og daglegan rekstur fyrir Atvinnuleysistryggingasjóð í umboði sjóðsstjórnar og undir umsjá og eftirliti hennar.
- Annast sjóðsvörslu, reikningshald og daglega afgreiðslu fyrir Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga í umboði sjóðsstjórnar og undir umsjá og eftirliti hennar.
- Annast sjóðsvörslu, reikningshald og daglega afgreiðslu fyrir Ábyrgðarsjóð launa í umboði sjóðsstjórnar og undir umsjá og eftirliti hennar.
- Annast útgáfu atvinnuleyfa í umboði félagsmálaráðuneytis.
- Annast daglega afgreiðslu fyrir Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins.

