Sveitarstjórnarmál flutt til samgönguráðuneytis
Hinn 1. janúar 2008 fluttust sveitarstjórnarmál frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu til samgönguráðuneytis sem nú fer með málefni sveitarfélaga. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 skal ráðuneytið hafa eftirlit með því að sveitarstjórnir gegni skyldum sínum samkvæmt þeim lögum og öðrum löglegum fyrirmælum.
Úrskurðir og álit, um sveitarstjórnarmál frá árunum 2000-2007 er að finna á síðum félags- og tryggingmálaráðuneytisins. Útgefið efni og fréttir af sveitarstjórnarmálum er að finna í fréttasafni ráðuneytisins.
