Stefna í málefnum aldraðra til næstu ára
Hinn 27. júní 2008 kynnti félags- og tryggingamálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir áhersluatriði sem unnið verður að í málefnum aldraðra á næstu misserum:
- Aldraðir fái viðeigandi stuðning og einstaklingsmiðaða þjónustu til að geta dvalið sem lengst á eigin heimili.
- Aldraðir og aðstandendur hafi greiðan aðgang að upplýsingum um réttindi og þjónustu.
- Almannatryggingakerfið verði einfaldað og réttindi aldraðra verði betur skilgreind.
- Réttur aldraðra til sjálfstæðrar búsetu og sjálfsforræðis verði virtur.
- Öldruðum standi til boða fjölbreytt val búsetuforma.
- Dagvistar-, hvíldar- og skammtímarýmum verði fjölgað.
- Gæðaviðmið um þjónustu við aldraða verði sett.
- Eftirlit með þjónustu við aldraða verði aukið og bætt.
- Nýjar áherslur verði teknar upp við uppbyggingu hjúkrunarheimila og endurbætur á eldra húsnæði.
- Greiðsluþátttöku aldraðra í hjúkrunar- og dvalarrýmum verði breytt þannig að aldraðir haldi fjárhagslegu sjálfstæði og greiðslur vasapeninga lagðar af.
- Hjúkrunarrýmum verði fjölgað til að mæta þörf.
- Fjölbýlum á hjúkrunarheimilum verði útrýmt að mestu leyti.
- Tryggt verði að öldrunarþjónustan hafi ávallt á að skipa hæfu og metnaðarfullu starfsfólki.
- Heildarábyrgð á þjónustu við aldraða verði færð til sveitarfélaga eigi síðar en á árinu 2012.
