Svæðisskrifstofur

Þjónusta svæðisskrifstofa málefna fatlaðra

Almenn atriði

Hverjir njóta þjónustu svæðisskrifstofa?
Svæðisskrifstofur veita þeim þjónustu og aðstoð sem eru andlega eða líkamlega fatlaðir og þarfnast sérstaks stuðnings af þeim sökum. Með fötlun er hér einkum átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun og sjón- og heyrnarskerðingu. Fötlun getur einnig verið afleiðing af langvarandi veikindum, svo og slysum. Fjölskyldur fatlaðs fólks og þeir sem veita þeim þjónustu geta leitað til svæðisskrifstofu.

Miðlun upplýsinga, leiðbeiningar og aðstoð
Svæðisskrifstofa veitir upplýsingar um möguleika fatlaðs fólks til þjónustu, náms, starfs og tómstundaiðju. Enn fremur aðstoðar hún fólk við að sækja um aðstoð og þjónustu, m.a. hjá Tryggingastofnun ríkisins, sveitarfélögum og öðrum aðilum.

Yfirlit yfir þjónustu í einstökum málum
Svæðisskrifstofa heldur yfirlit yfir þjónustu í einstökum málum og samhæfir hana, gætir réttinda fólks og á samvinnu við þjónustustofnanir, svo sem heilsugæslustöðvar, fyrirtæki, skóla og sveitarfélög.

Samstarf svæðisskrifstofu og sveitarfélaga
Víða eiga svæðisskrifstofur mikið og gott samstarf við sveitarfélögin um þá þjónustu sem er á þeirra sviði. Í þessu felst m.a. samvinna um liðveislu og heimaþjónustu, húsnæðismál og ferðaþjónustu. Þetta samstarf fer vaxandi.

Trúnaður
Starfsmenn svæðisskrifstofa eru bundnir þagnarskyldu og fjalla ekki um einstök mál við óviðkomandi.

Þjónusta svæðisskrifstofu málefna fatlaðra við börn og fjölskyldur þeirra

Ráðgjöf til foreldra
Foreldrar, aðstandendur og þeir sem veita fötluðum börnum þjónustu, eiga kost á stuðningi, leiðbeiningum og ráðgjöf hjá svæðisskrifstofu.

Þjónusta leikfangasafns
Þjónusta leikfangasafna felur m.a. í sér ráðgjöf um fötlun barna og þroska þeirra. Á svæðisskrifstofu er einnig veitt sérhæfð ráðgjöf um leikfangaval, lánuð eru út sérhæfð leikföng/þjálfunargögn og fötluð börn geta komið í þjálfun.

Dvöl í skammtímavistun og hjá fjölskyldum
Börnum er boðið upp á tímabundna dvöl annað hvort hjá stuðningsfjölskyldu eða í skammtímavistun. Tilgangurinn er m.a. að draga úr álagi á heimili, veita börnunum tilbreytingu og gefa þeim kost á auknum félagslegum tengslum.

Samvinna
Svæðisskrifstofa leggur sig fram um að eiga gott samstarf þær stofnanir sem veita börnum þjónustu, svo sem Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Barnadeild og Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, félagsþjónustu sveitarfélaga, heilsugæslustöðvar, skóla og skólaskrifstofur.

Umönnunargreiðslur
Greiðslurnar eru ætlaðar framfærendum fatlaðra og langveikra barna vegna aukins kostnaðar sem fötlunin og veikindin hafa í för með sér. Foreldrar sækja um umönnunargreiðslur hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þegar barn er fatlað gerir svæðisskrifstofa tillögur til Tryggingastofnunar um greiðslur.

Þjónusta svæðisskrifstofu við fullorðna og fjölskyldur þeirra

Ráðgjöf
Svæðisskrifstofa veitir fötluðu fólki, aðstandendum þess og þeim sem veita hinum fatlaða þjónustu, ráðgjöf, leiðbeiningar og stuðning.

Frekari liðveisla
Í frekari liðveislu felst aðstoð í daglegu lífi. Liðveislan kemur til viðbótar heimaþjónustu sveitarfélaganna. Hún er ætluð þeim sem búa sjálfstætt.

Skammtímavistun
Í henni felst tímabundin dvöl utan heimilis. Tilgangurinn er að bjóða upp á fjölbreytni og hvíld. Ekki bjóða allar svæðisskrifstofurnar upp á skammtímavistun en í hennar stað er boðið upp á skammtímadvöl á einkaheimilum.

Búseta
Svæðisskrifstofa gefur fólki kost á mismunandi búsetu með rekstri sambýla og þjónustuíbúða. Sambýlin eru innbyrðis ólík að því leyti að sum veita mjög mikla þjónustu en önnur minni eftir þörfum íbúanna.

Atvinnumál
Atvinnuþátttaka á almennum vinnumarkaði: Aðstoð svæðisskrifstofu felst í atvinnuleit, aðstoð við að finna störf við hæfi á almennum vinnumarkaði, stuðningi og liðveislu. Enn fremur er veitt ráðgjöf til vinnustaða þar sem fatlað fólk vinnur.
Starfsþjálfun: Verndaðir vinnustaðir eru reknir á vegum svæðisskrifstofa og er markmið þeirra að veita fötluðu fólki þjálfun til starfa á almennum vinnumarkaði.

Hæfing og iðja: Hæfingarstöðvar eru starfræktar á vegum svæðisskrifstofanna. Þar fer fram félagsleg og verkleg þjálfun. Markmið hæfingar og þjálfunar er að draga úr áhrifum fötlunar og auka hæfni fólks til starfa og þátttöku í samfélaginu.
Örorkuvinnusamningar: Aðstoð er veitt við gerð og frágang vinnustaðasamninga en í þeim felst að Tryggingastofnun endurgreiðir atvinnurekanda hluta af launum öryrkja.
Hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins er rekin sérstök atvinnudeild fatlaðra.

Styrkir til náms, tækjakaupa og atvinnurekstrar
Á svæðisskrifstofu er hægt að sækja um styrki til greiðslu námskostnaðar. Hér bæði átt við útlagðan kostnað vegna námsgagna, t.d. tölvur og námskeiðs- og skólagjöld. Þá er einnig hægt að sækja um styrk til verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi.






Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica