Jafnréttisstofa

Jafnréttisstofa

Jafnréttisstofa er sérstök stofnun sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra. Hlutverk hennar er meðal annars að auka virkni í jafnréttismálum og fylgjast með þjóðfélagsþróuninni á þessu sviði, meðal annars með upplýsingaöflun og rannsóknum.

Ekki síst er eftirlitshlutverk Jafnréttisstofu með framkvæmd laganna mikilvægt enda talið eitt af lykilþáttum þess að lögin nái tilgangi sínum. Enn fremur sér Jafnréttisstofa um fræðslu og upplýsingastarfsemi á sviði jafnréttismála en þangað geta stofnanir, fyrirtæki, einstaklingar og félagasamtök leitað eftir aðstoð.

Auk þessa skal stofan vera stjórnvöldum til ráðgjafar á þessu sviði.





Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica