Íbúðalánasjóður

Íbúðalánasjóður


Íbúðalánasjóður annast stjórn og framkvæmd húsnæðismála samkvæmt lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál sem tóku gildi 1. janúar 1999.

Verkefni sjóðsins eru að annast lánveitingar til húsnæðisöflunar en þar á meðal eru almenn húsnæðislán til einstaklinga. Þá skal sjóðurinn enn fremur annast um lánveitingar til sveitarfélaga, félaga og félagasamtaka vegna byggingar eða kaupa á leiguhúsnæði.

Íbúðalánasjóður hefur einnig það hlutverk að stuðla að tækninýjungum og umbótum í byggingariðnaði með lánum eða styrkjum. Íbúðalánasjóður skal vera ráðgefandi fyrir stjórnvöld og fara með verkefni sem lög gera ráð fyrir og félagsmálaráðherra ákveður.

Félagsmálaráðherra skipar sjórn Íbúðlánasjóðs til fjögurra ára í senn.

Stjórn Íbúðalánasjóðs

Tenging frá vef ráðuneytisinsHeimasíða Íbúðalánasjóðs






Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica