Húsaleigumál

Ástand leiguhúsnæðis

Ástand leiguhúsnæðis

Þegar leiguhúsnæði er afhent leigjanda skal það vera í því ástandi sem almennt er talið fullnægjandi miðað við fyrirhugaða notkun þess og staðsetningu. Það skal vera hreint, rúður heilar, læsingar og rofar virkir, hreinlætis-, hitunar- og eldhústæki í lagi, sem og vatns- og frárennslislagnir. Íbúðarhúsnæði á að fylgja það fylgifé sem var til staðar við sýningu sé ekki um annað samið.

Ástandi leiguhúsnæðis ábótavant í upphafi

Ef í ljós kemur að húsnæðið er ekki í því ástandi sem leigusamningur greinir eða leigjandi hlaut að mega gera ráð fyrir þá skal leigjandi innan eins mánaðar frá afhendingu gera leigusala skriflega grein fyrir aðfinnslum sínum og segja til um hverra úrbóta er krafist. Að öðrum kosti telst leigjandi una húsnæðinu.

Ástandi leiguhúsnæðis ábótavant síðar

Leigjandi skal segja til um galla sem síðar koma fram á húsnæðinu og ekki voru sýnilegar við venjulega athugun innan 14 daga frá því hann varð þeirra var.

Úrræði leigjanda ef leigusali bætir ekki úr annmörkum

Geri leigusali ekki innan eins mánaðar ráðstafanir til að bæta úr annmörkum á húsnæðinu er leigjanda heimilt að ráða bót á þeim og draga frá leigunni þann kostnað sem af því hlýst enda hafi hann fyrst aflað samþykkis byggingarfulltrúa.
Ef leigusali sinnir ekki réttmætri kröfu leigjanda um úrbætur innan tveggja mánaða frá því hún barst honum og leigjandi ekki neytt réttar síns eins og að ofan greinir er leigjanda heimilt að rifta leigusamningi, enda sé um verulega annmarka að tefla miðað við fyrirhuguð not leigjanda af húsnæðinu.

Lækkun á húsaleigu

Þá á leigjandi kröfu til hlutfallslegrar lækkunar á leigu meðan ekki hefur verið bætt úr annmörkum á húsnæðinu. Þá lækkun metur byggingarfulltrúi, en aðilar geta þó borið álit hans undir kærunefnd húsaleigumála.




Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica