Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ef samanlagðar eignir allra þeirra sem lögheimili/aðsetur eiga í viðkomandi leiguhúsnæði að frádregnum skuldum eru umfram 3* milljónir króna, skulu 25% þeirrar fjárhæðar sem umfram er bætast við þær tekjur sem liggja til grundvallar ákvörðun um fjárhæðir húsaleigubóta.
* Fjárhæð þessi breytist í samræmi við neysluvísitölu til verðtryggingar og var hinn 1. janúar 2010: 5.918.453 kr.