Almennar upplýsingar um húsaleigubætur
Lög um húsaleigubætur nr. 138/1997 tóku gildi 1. janúar 1998. Markmið laganna er að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda og að draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaðnum. Umsókn um húsaleigubætur skal skila til lögheimilissveitarfélags umsækjanda. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað fyrir húsaleigubætur en í sumum tilfellum, t.d. í Reykjavík hafa sveitarfélögin látið útbúa sérstök umsóknareyðublöð.

Samráðsnefnd um húsaleigubætur
Í tengslum við lögin er starfandi þriggja manna samráðsnefnd sem skal fylgjast með framkvæmd laga og reglugerða um húsaleigubætur. Hlutverk samráðsnefndar er að vera samráðsvettvangur ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um lög og reglugerðir um húsaleigubætur, og fylgjast með framkvæmd og þróun húsaleigubótakerfisins. Nefndin skal fjalla um tillögur um breytingar á lögum og reglugerðum um húsaleigubætur, meta kostnað slíkra breytinga og önnur áhrif. Einnig skal samráðsnefnd miðla upplýsingum til sveitarfélaga
Samráðsnefnd og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga safna upplýsingum um húsaleigubætur árlega. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiðir framlög til sveitarfélaga vegna greiðslu þeirra á húsaleigubótum samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997, með síðari breytingum, og reglugerð um húsaleigubætur.
Húsaleigubætur |
Húsaleigusamningar |
