Húsnæðismál

Félagsmálaráðuneytið fer með framkvæmd laga og reglugerða um húsnæðismál ásamt stefnumótun. Í lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál (nánari upplýsingar um lögin), sem tóku gildi 1. janúar 1999, er kveðið á um stjórnskipulag húsnæðismála þar sem félagsmálaráðherra fer með yfirstjórnina.
- Nánari upplýsingar...





 
 

Kærunefndir

Kærunefnd húsamála
Frá 1. júlí 2010 voru kærunefnd fjöleignarhúsamála, kærunefnd húsaleigumála og úrskurðarnefnd frístundahúsamála sameinaðar í eina nefnd sem heitir kærunefnd húsamála. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um ágreining milli eigenda í fjöleignarhúsum, milli leigjenda og leigusala íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og milli leigusala og leigutaka lóða undir hús í frístundabyggð.

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Frá 1. júlí 2010 voru úrskurðarnefnd félagsþjónustu og kærunefnd húsnæðismála sameinaðar í eina nefnd sem heitir úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála. Hlutverk nefndarinnar er áfram að skera úr ágreiningsmálum sem kunna að rísa vegna ákvarðana félagsmálanefnda á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og vegna ákvarðana húsnæðisnefnda og Íbúðalánasjóðs á grundvelli laga um húsnæðismál.

 

Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica