Fjölskylduráð

Í byrjun árs 1998 skipaði félagsmálaráðherra fjölskylduráð í samræmi við þingsályktun um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar.
- Gerð fjölskyldustefnu sveitarfélaga
- Fjölskyldustefna sveitarfélaga, forsendur, undirbúningur og vinnuferli
Drífa Sigfúsdóttir (Erindi o.fl)
Fjölskylduráð og fjölskyldustefna fyrirtækja
Líf hvers manns er ævintýri skráð af fingri Guðs sagði skáldið H.C. Andersen
Familierådet (á dönsku)
Hlutverk fjölskylduráðsins er m.a. eftirfarandi
a) að veita stjórnvöldum ráðgjöf í fjölskyldumálum,
b) að annast tillögugerð um framkvæmdaáætlanir í málefnum fjölskyldunnar,
c) að eiga frumkvæði að opinberri umræðu um málefni fjölskyldunnar og veita leiðbeinandi upplýsingar til fjölskyldna um viðbrögð við nýjum og breyttum aðstæðum,
d) að hvetja til aðgerða á sviði fjölskyldumála í samfélaginu og
e) að stuðla að rannsóknum á högum og aðstæðum íslenskra fjölskyldna.
