Barnaverndarstofa
Barnaverndarstofa
Barnaverndarstofa er sjálfstæð ríkisstofnun sem heyrir undir yfirstjórn félags- og tryggingamálaráðherra. Barnaverndarstofa vinnur að samhæfingu og eflingu barnaverndarstarfs í landinu.
Helstu verkefni Barnaverndarstofu eru:
- Að leiðbeina barnaverndarnefndum um túlkun og framkvæmd barnaverndarlaga.
- Að hafa eftirlit með störfum barnaverndarnefnda, þar á meðal heimta frá þeim ársskýrslur.
- Að veita barnaverndarnefndum fulltingi við öflun hæfra fósturforeldra.
- Að hlutast til um að fram fari þróunar- og rannsóknarstarf á sviði barnaverndar.
- Að annast fræðslu um barnavernd, einkum til barnaverndarnefnda og starfsmanna þeirra.
- Að hlutast til um að settar verði á fót sérhæfðar stofnanir og heimili sem ríkið rekur eða styrkir fyrir börn og ungmenni sem vistuð eru á grundvelli barnaverndarlaga.
- Að hafa yfirumsjón og eftirlit með framangreindum stofnunum og heimilum.
- Að bjóða barnaverndarnefndum upp á sérhæfða þjónustu, en dæmi um slíka þjónustu er Barnahús og fjölkerfameðferð MST.
Meðferðarstöð ríkisins, Stuðlar.
Meðferðarstöð ríkisins, Stuðlar, er rekin undir yfirstjórn Barnaverndarstofu. Á Stuðlum er veitt tvenns konar þjónusta, þ.e. meðferðardeild þar sem fram fer greining og meðferð og lokuð deild (neyðarvistun) þar sem fram fer gæsla og mat.
Meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu.
Sérhæfð meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu eru nú Árbót Aðaldal í Þingeyjarsýslu, Laugaland í Eyjafjarðarsveit, Háholt í Skagafirði og Götusmiðjan Akurhóll.
Barnahús.
Barnaverndarstofa rekur Barnahús til að sinna málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Það eru barnaverndarnefndir sem bera ábyrgð á vinnslu slíkra mála og geta þær óskað eftir þjónustu Barnahúss.
Fjölkerfameðferð, MST.
Á vegum Barnaverndarstofu er unnið að fjölkerfameðferð þar sem starfað er með fjölskyldum unglinga með alvarlegan hegðunarvanda sem annars þyrfti að vista utan heimilis. Markmiðið er að gera foreldra færari um að takast á við foreldrahlutverkið og bæta samheldni og samskipti í fjölskyldu. Meðferðin fer fram á heimili fjölskyldunnar.
