Almennar upplýsingar um barnaverndarmál
Um barnavernd er fjallað í barnaverndarlögum, nr. 80/2002. Markmið laganna er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð. Skal það gert með því að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við.
Barnaverndarstarf skal stuðla að stöðugleika í uppvexti barna. Beita skal þeim ráðstöfunum sem ætla má að séu barni fyrir bestu. Börn skulu njóta réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska og skal taka tillit til sjónarmiða og óska barna eftir því sem aldur þeirra og þroski gefur tilefni til. Barnaverndaryfirvöld skulu leitast við að hafa góða samvinnu við börn og foreldra sem þau hafa afskipti af.
Barnaverndarstarf fer bæði fram hjá sveitarfélögum og ríkinu, þ.e. hjá barnaverndarnefndum annars vegar og Barnaverndarstofu hins vegar.
Grunnþjónustan fer fram hjá barnaverndarnefndum sveitarfélaga. Barnaverndarnefndir hafa eftirlit með aðbúnaði, hátterni og uppeldisskilyrðum barna og meta þarfir þeirra barna sem ætla megi að þurfi á úrræðum laganna að halda. Úrræðin eru fjölbreytt og geta bæði verið innan heimilis og utan.
Þegar barnaverndarnefnd fær tilkynningu, eða berast upplýsingar með öðrum hætti, um að líkamlegri eða andlegri heilsu barns eða þroska geti verið hætta búin vegna vanhæfnis eða framferðis foreldris, áreitni eða ofbeldis af hendi annarra eða eigin hegðunar barns, skal nefndin án tafar, og eigi síðar en innan sjö daga frá því henni barst tilkynning eða upplýsingar, kanna hvort ástæða sé að taka málið til könnunar. Tilkynningar berast til barnaverndarnefndar í samræmi við ákvæði barnaverndarlaga um tilkynningarskyldu. Slík tilkynningarskylda hvílir á almenningi og hjá þeim sem hafa afskipti af börnum í störfum sínum og hjá lögreglu. Tilkynningarskylda almennings felst í því að hverjum þeim, sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu, er skylt að tilkynna það barnaverndarnefnd. Slík tilkynning skal berast Neyðarlínunni í síma 112. Hægt er óska nafnleyndar.
Barnaverndarnefndir starfa sjálfstætt og er sveitarstjórnum óheimilt að gefa barnaverndarnefndum fyrirmæli um meðferð einstakra barnaverndarmála.
Sá sem er ósáttur við tilteknar skriflegar ákvarðanir barnaverndarnefndar getur skotið þeim til kærunefndar barnaverndarmála.
Þegar barnaverndarnefnd telur nauðsyn á að gera mjög alvarlegar ráðstafanir í lífi barns, svo sem að svipta foreldra forsjá þess, fer slíkt mál fyrir dómstóla.
Barnaverndarstofa er ríkisstofnun sem vinnur að samhæfingu og eflingu barnaverndarstarfs á landinu og veitir barnaverndarnefndum fræðslu og ráðgjöf og hefur eftirlit með starfi þeirra, auk annarra verkefna.
