Kærunefnd húsnæðismála

Hvað er hægt að kæra til kærunefndar húsnæðismála?

Nefndin sker úr ágreiningsmálum sem kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda samkvæmt lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Kærufrestur

Kærufrestur er fjórar vikur frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.

Málsmeðferð hjá nefndinni

Í kæru skal lýst þeirri afgreiðslu eða ákvörðun sem kærð er. Jafnframt skal fylgja rökstuðningur um málsatvik.
Úrskurði kærunefndar húsnæðismála verður ekki skotið til annars stjórnvalds, en meðferð nefndarinnar á ágreiningsmáli eða úrskurður hennar hindrar aðila á engan hátt í að leggja ágreining sinn undir almenna dómstóla með venjulegum hætti.

Málsmeðferðartími

Kærunefnd húsnæðismála skal kveða upp úrskurð sinn innan tveggja mánaða frá því að henni berst mál.

Kostnaður

Málsmeðferð er aðilum máls að kostnaðarlausu.

Eyðublað

Kæra til nefndarinnar skal vera skrifleg og skal þar greint nafn, heimilisfang og kennitala þess sem kærir.
Kærueyðublöð liggja frammi hjá eftirtöldum stofnunum:

  • Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu í Reykjavík
  • Íbúðalánasjóði, Borgartúni 21 í Reykjavík
  • Húsnæðisnefndum sveitarfélaga

Eyðublað á rafrænu formi

Fylgigögn

Æskilegt er að afrit af ákvörðun húsnæðisnefndar eða Íbúðalánasjóðs fylgi kæru.

Aðsetur nefndarinnar

Kærunefnd húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu
150 Reykjavík

Birting úrskurða

Til ársins 2000 gaf nefndin út úrskurði sína árlega en frá árinu 2001 hafa úrskurðir nefndarinnar verið birtir á vef réttarheimilda, auk þess sem birtir þar eru úrskurðir nefndarinnar frá árinu 1999.

Nefndarmenn

Lög og reglugerðir á sviði húsnæðismála




Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica