Á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins eru starfandi sjö kærunefndir

Úrskurðarnefnd almannatrygginga

Til nefndarinnar er unnt að kæra ágreining sem rís um grundvöll, skilyrði og upphæð bóta eða greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Einnig fjallar nefndin um ágreining um endurkröfurétt, ofgreiðslur og innheimtu skv. 55. gr. laga um almannatryggingar.

Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða

Hlutverk úrskurðarnefndarinnar er að kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Úrskurðir úrskurðarnefndarinnar fela í sér endanlega stjórnvaldsákvörðun.

Kærunefnd barnaverndarmála

Aðilar barnaverndarmáls geta skotið ákvörðunum barnaverndarnefnda, sem ekki verður skotið til dómstóla, til kærunefndar barnaverndarmála. Skjóta má tilteknum ákvörðunum Barnaverndarstofu til kærunefndar barnaverndarmála. Ákvörðun heimilis eða stofnunar má einnig skjóta til nefndarinnar.

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála

Frá 1. júlí 2010 voru úrskurðarnefnd félagsþjónustu og kærunefnd húsnæðismála sameinaðar í eina nefnd sem heitir úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála. Hlutverk nefndarinnar er áfram að skera úr ágreiningsmálum sem kunna að rísa vegna ákvarðana félagsmálanefnda á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og vegna ákvarðana húsnæðisnefnda og Íbúðalánasjóðs á grundvelli laga um húsnæðismál.

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála

Til nefndarinnar er unnt að kæra ágreining sem kann að rísa á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof og ákvarðanir framkvæmdaraðila um réttindi foreldra langveikra barna og alvarlega fatlaðra barna sem teknar eru á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Kærunefnd húsamála

Frá 1. júlí 2010 voru kærunefnd fjöleignarhúsamála, kærunefnd húsaleigumála og úrskurðarnefnd frístundahúsamála sameinaðar í eina nefnd sem heitir kærunefnd húsamála. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um ágreining milli eigenda í fjöleignarhúsum, milli leigjenda og leigusala íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og milli leigusala og leigutaka lóða undir hús í frístundabyggð.

Kærunefnd jafnréttismála

Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök, í eigin nafni eða fyrir hönd félagsmanna sem telja að ákvæði jafnréttislaga hafi verið brotin á sér, geta leitað atbeina kærunefndar jafnréttismála. Jafnréttisstofa getur óskað eftir að kærunefnd jafnréttismála taki mál til meðferðar.




Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica