Úrskurðarnefnd frístundahúsamála

Hvað er hægt að kæra til úrskurðarnefndar frístundahúsamála?

Unnt er að skjóta ágreiningi sem upp kann að koma á milli leigusala og leigutaka lóða undir hús í frístundabyggð til úrskurðarnefndar frístundahúsamála.

Einnig er hægt að bera undir nefndina ágreiningsefni um réttindi og skyldur í frístundabyggð, sbr. lög um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús, nr. 75/2008.

Kærufrestur

Enginn kærufrestur er hjá kærunefndinni.

Málsmeðferð hjá nefndinni

Kæra

Í kæru skv. 12. gr. laga nr. 75/2008, sbr. 13.–15. gr., skulu koma fram upplýsingar um kæranda, þann sem kæra beinist að (gagnaðila), landnúmer lóðar undir frístundahús sem deilt er um og fasteignanúmer mannvirkja á lóð.

Í kæru skulu koma fram kröfur kæranda ásamt stuttri lýsingu málsatvika og málsástæðna sem og rökstuðningur.

Með kæru skal ávallt fylgja afrit af eldri leigusamningi og ef því er að skipta uppsögn eða tilkynningum.

Kröfugerð kæranda skal lúta að valdsviði nefndarinnar skv. 13.–15. gr.

Fullnægi kæra ekki ofangreindum skilyrðum skal úrskurðarnefndin beina því til kæranda að bæta úr annmörkum innan hæfilegs frests. Verði kærandi ekki við því skal úrskurðarnefndin vísa máli frá. Máli skal vísað frá ef kæra berst utan tímafresta skv. 12. gr. laganna. Upplýsa skal gagnaðila um frávísun.

Sé kæra tæk til efnismeðferðar gefur nefndin gagnaðila kost á að tjá sig um efni kærunnar.

Þegar báðir aðilar hafa komið sínum sjónarmiðum að skal úrskurðarnefnd leita sátta með aðilum nema hún telji víst að sáttatilraun verði árangurslaus vegna atvika máls, afstöðu aðila eða annarra ástæðna.
Málflutningur skal vera skriflegur, en heimilt er að gefa aðilum kost á að færa fram athugasemdir munnlega.

Nú skortir upplýsingar um atriði sem máli kunna að skipta og getur þá nefndin óskað eftir því við málsaðila að þeir afli gagna sem varpa ljósi á þessi atriði.

Þegar nauðsyn krefur framkvæmir nefndin vettvangsgöngu að tilkvöddum málsaðilum.

Þegar gagnaöflun er lokið skal úrskurðarnefnd kveða upp úrskurð um kæru eins fljótt og auðið er.

Álit

Greini aðila á um framkvæmd ákvæða III. kafla geta þeir borið ágreiningsefnið undir úrskurðarnefnd frístundahúsamála sem lætur í té rökstutt álit.

Erindi til úrskurðarnefndar skal vera skriflegt og í því skal skilmerkilega greina ágreiningsefnið, kröfu aðila og rökstuðning fyrir henni.

Úrskurðarnefnd gefur gagnaðila kost á að tjá sig og koma sjónarmiðum sínum og kröfum á framfæri.

Heimilt er úrskurðarnefnd að kalla eftir öllum nauðsynlegum upplýsingum og gögnum og óska umsagnar frá öðrum sem málið snertir eða við kemur.

Um málsmeðferð fer að öðru leyti samkvæmt stjórnsýslulögum.

Álit og úrskurðir úrskurðarnefndar frístundahúsamála eru endanlegir á stjórnsýslustigi.

Málsmeðferðartími

Hvað málsmeðferðartíma kæru varðar ber að líta til 12. gr. laga nr. 75/2008

Kostnaður

Sá sem vísar ágreiningi til úrskurðarnefndar frístundahúsamála skal greiða 15.000 króna gjald til ríkissjóðs. Að öðru leyti greiðist kostnaður við störf úrskurðarnefndar úr ríkissjóði.

Eyðublað

Eyðublöð vegna álitsbeiðni og kæru liggja frammi hjá eftirtöldum stofnunum:

  • Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu í Reykjavík
  • Landssambandi sumarhúsaeigenda, Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík

Kæra og álitsbeiðni verða að vera skriflegar, en ekki er nauðsynlegt að eyðublaðið sé notað. Kæra og álitsbeiðni þurfa að berast úrskurðarnefnd undirritaðar af þeim sem leitar til nefndarinnar eða þeim sem hefur fengið umboð til þess, þá ásamt umboði.

Eyðublöð á rafrænu formi

Fylgigögn

Með kæru verða að fylgja þau gögn sem varpað geta ljósi á mál, svo sem fundargerðir, samþykktir, leigusamningur, lóðarsamningar, teikningar, ljósmyndir o.s.frv.

Með álitsbeiðni verða að fylgja þau gögn sem varpað geta ljósi á mál, svo sem fundargerðir, samþykktir, lóðarsamningar, teikningar, ljósmyndir o.s.frv.

Aðsetur nefndarinnar

Úrskurðarnefnd frístundahúsamála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu
150 Reykjavík

Birting úrskurða og álita

Úrskurðir og álit nefndarinnar verða birt á vef réttarheimilda

Nefndarmenn

Lög og reglugerðir á sviði húsnæðismála



Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica