Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hvað er hægt að kæra til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála?
Til nefndarinnar er unnt að skjóta ákvörðun félagsmálanefndar samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og ákvörðun húsnæðisnefnda og Íbúðalánasjóðs samkvæmt lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998.
Kærufrestur
Kærufrestur er fjórar vikur frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.
Kæran telst nægjanlega snemma fram komin ef póststimpill bréfs sem hefur hana að geyma sýnir að kæran hefur verið send nefndinni áður en fresturinn er liðinn.
Málsmeðferð hjá nefndinni
Í kæru skal lýst þeirri afgreiðslu eða ákvörðun sem kærð er. Jafnframt skal fylgja rökstuðningur um málsatvik.
Ef ástæða þykir til getur nefndin mælt fyrir um munnlegan eða skriflega málflutning.
Úrskurðir nefndarinnar eru fullnaðarúrskurðir á sviði stjórnsýslunnar. Úrskurði verður ekki skotið til annars stjórnvalds, en meðferð nefndarinnar á ágreiningsmáli eða úrskurður hennar hindrar aðila á engan hátt í að leggja ágreining sinn undir almenna dómstóla með venjulegum hætti.
Málskot til nefndarinnar frestar ekki framkvæmd hinnar kærðu ákvörðunar nema nefndin ákveði annað.
Málsmeðferðartími
Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála skal kveða upp úrskurð innan þriggja mánaða frá því að henni berst mál á sviði félagsþjónustu sveitarfélaga og innan tveggja mánaða frá því að henni berst mál á sviði húsnæðismála.
Kostnaður
Málsmeðferð er aðilum máls að kostnaðarlausu.
Eyðublað
Kærueyðublöð liggja frammi hjá eftirtöldum stofnunum:
- Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu í Reykjavík
- Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 10–14 í Reykjavík og þjónustuskrifstofum sviðsins
- Íbúðalánasjóði, Borgartúni 21 í Reykjavík
- Á skrifstofum sveitarfélaga
Kæra verður að vera skrifleg, en ekki er nauðsynlegt að eyðublaðið sé notað. Kæra þarf að berast úrskurðarnefnd undirrituð af þeim sem kærir eða þeim sem hefur fengið umboð til þess, þá ásamt umboði.
Í kæru vegna félagsþjónustu sveitarfélaga þurfa að koma fram upplýsingar um lögheimili kæranda og kennitala, hjúskaparstaða og börn á framfæri. Jafnframt þurfa að koma fram upplýsingar um hagi og aðstæður kæranda í stuttu máli. Ef um er að ræða áfrýjun vegna fjárhagsaðstoðar er nauðsynlegt að fram komi ráðstöfunarfé, húsnæðisaðstæður og annað sem máli kann að skipta að mati kæranda.
Fylgigögn
Með kæru þarf að fylgja afrit af ákvörðun félagsmálanefndar, húsnæðisnefndar eða Íbúðalánasjóðs og önnur afrit af gögnum sem nauðsynleg eru nefndinni við úrlausn mála.
Aðsetur nefndarinnar
Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu
150 Reykjavík
Birting úrskurða
Úrskurðir úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála eru ekki birtir opinberlega á sviði félagsþjónustu sveitarfélaga vegna persónugreinanlegra upplýsinga í úrskurðunum en úrskurðir á sviði laga um húsnæðismál eru birtir á vef réttarheimilda.
Nefndarmenn
Lög og reglugerðir á sviði félagsþjónustu sveitarfélaga
Lög og reglugerðir á sviði húsnæðismála
