Á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins eru starfandi tíu kærunefndir

Úrskurðarnefnd almannatrygginga

Til nefndarinnar er unnt að kæra ágreining sem rís um grundvöll, skilyrði og upphæð bóta eða greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Einnig fjallar nefndin um ágreining um endurkröfurétt, ofgreiðslur og innheimtu skv. 55. gr. laga um almannatryggingar.

Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða

Hlutverk úrskurðarnefndarinnar er að kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Úrskurðir úrskurðarnefndarinnar fela í sér endanlega stjórnvaldsákvörðun.

Kærunefnd barnaverndarmála

Aðilar barnaverndarmáls geta skotið ákvörðunum barnaverndarnefnda, sem ekki verður skotið til dómstóla, til kærunefndar barnaverndarmála. Skjóta má tilteknum ákvörðunum Barnaverndarstofu til kærunefndar barnaverndarmála. Ákvörðun heimilis eða stofnunar má einnig skjóta til nefndarinnar.

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu

Málsaðili getur skotið ákvörðun félagsmálanefndar eða félagsmálaráðs til úrskurðarnefndar félagsþjónustu. Í Reykjavík og í stærri sveitarfélögum eru starfandi félagsmálaráð.

Kærunefnd fjöleignarhúsamála

Nefndin fjallar um ágreining milli eigenda í fjöleignarhúsum. Ágreiningurinn þarf að varða réttindi þeirra og skyldur samkvæmt lögum um fjöleignarhús. Eigendum fjöleignarhúsa, einum eða fleiri, er heimilt, en ekki skylt, að leita til nefndarinnar með ágreiningsefni sín.

Úrskurðarnefnd frístundahúsamála

Unnt er að skjóta ágreiningi sem upp kann að koma á milli leigusala og leigutaka lóða undir hús í frístundabyggð til úrskurðarnefndar frístundahúsamála. Einnig er hægt að bera undir nefndina ágreiningsefni um réttindi og skyldur í frístundabyggð.

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála

Til nefndarinnar er unnt að kæra ágreining sem kann að rísa á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof og ákvarðanir framkvæmdaraðila um réttindi foreldra langveikra barna og alvarlega fatlaðra barna sem teknar eru á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Kærunefnd húsaleigumála

Nefndin fjallar um ágreining milli leigjenda og leigusala um framkvæmd og/eða gerð leigusamings. Aðilum leigusamnings, einum eða fleiri, er heimilt, en ekki skylt, að leita til nefndarinnar með ágreiningsefni sín.

Kærunefnd húsnæðismála

Hlutverk nefndarinnar er að skera úr ágreiningsmálum sem kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda samkvæmt lögum um húsnæðismál og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Kærunefnd jafnréttismála

Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök, í eigin nafni eða fyrir hönd félagsmanna sem telja að ákvæði jafnréttislaga hafi verið brotin á sér, geta leitað atbeina kærunefndar jafnréttismála. Jafnréttisstofa getur óskað eftir að kærunefnd jafnréttismála taki mál til meðferðar.




Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica