Hvert getur fólk leitað?
Yfirtaka húsnæðislána
Íbúðalánasjóður hefur nú samkvæmt lögum heimild til að yfirtaka íbúðaveðlán fjármálafyrirtækja. Heimildin á við um lán í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum. Hún gildir án tillits til fjárhæðar og á við um veðlán án viðmiðunarmarka um veðhæfi, FMR-mat eða brunabótamat. Verði lánin yfirtekin munu reglur Íbúðalánasjóðs um viðbrögð við greiðsluvanda gilda um þessi lán sem önnur lán sjóðsins.
Hvorki Íbúðalánasjóður né einstaklingar geta haft frumkvæði að yfirtöku lána frá öðrum fjármálafyrirtækjum. Lánastofnanir þurfa sjálfar að óska eftir að Íbúðalánasjóður yfirtaki húsnæðislán.
Íbúðalánasjóði verður heimilt að yfirtaka erlend lán. Yfirtaka erlendra lána verður væntanlega á þeim kjörum og skilmálum sem bréfin bera með sér.
Hærri lán en sem nemur hámarkslánum Íbúðalánasjóðs verða yfirtekin, en það kallar á breytingu á verklagsreglum sjóðsins. Lánin verða væntanlega yfirtekin á þeim forsendum sem samið var um í upphafi.
Greiðsluerfiðleikamál
Reglur varðandi greiðsluerfiðleika verða rýmkaðar. Nú er boðið upp á gjaldfrest, lengingu á lánstíma og/eða að vanskilum sé breytt í nýtt lán. Þessar reglur verða hugsanlega útvíkkaðar og e.t.v. breytt aðferðum við innheimtu þannig að menn fái enn lengri frest fyrir nauðungarsölu en hingað til hefur tíðkast.
Greiðslufrestur vegna sölutregðu
Íbúðalánasjóður heimilar nú þeim sem eiga tvær húseignir og hafa ekki getað selt aðra þeirra að fresta afborgunum af lánum. Heimilt er að fresta greiðslum af lánum sjóðsins á annarri eða báðum eignum. Sama rétt eiga þeir sem eru að byggja og eru með lán hjá Íbúðalánasjóði á nýbyggingunni og/eða þeirri eign sem ekki hefur tekist að selja. Hvíli lán frá Íbúðalánasjóði á annarri eigninni eingöngu er hægt að sækja um greiðslufrest á því láni.
Íbúðalánasjóður mun vinna úr öllum málum sem upp koma, en til þess þarf tíma. Álag á starfsfólki sjóðsins er mikið á þessum óvissutímum. Viðskiptavinir eru beðnir um að sýna þolinmæði á næstu dögum og vikum.
