Nefnd um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum
Konur og karlar hafa að mörgu leyti ólíkan bakgrunn, uppeldi og reynslu. Ákvarðanir sem við tökum eru byggðar á menntun okkar uppeldi og reynslu. Konur eru helmingur þjóðarinnar og það er því í þágu jafnréttis og lýðræðis að konur og karlar taki þátt í að móta samfélagið.

Skýrsla þessi er um störf nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum er byggðist á þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi árið 1998. Í nefndinni áttu sæti Hildur Helga Gísladóttir formaður, Arnbjörg Sveinsdóttir, Hólmfríður Sveinsdóttir, Kristín Halldórsdóttir, Margrét Sverrisdóttir, Ragnhildur Guðmundsdóttir og Valgerður H. Bjarnadóttir. Verkefnisstjóri var Una María Óskarsdóttir.
Tilurð nefndarinnar
- Tillaga til þingsályktunar um aðgerðir til að auka hlut kvenna í stjórnmálum
- Nefndarálit um till. til þál. um aðgerðir til að auka hlut kvenna í stjórnmálum
- Umræður á þingi um þingsályktun
- Þingsályktun um aðgerðir til að auka hlut kvenna í stjórnmálum
- Úr samþykktum og ályktunum stjórnmálaflokka og landsfundar jafnréttisnefnda sveitarfélaga um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum


