Fréttir

Breyting á reglugerð um varasjóð húsnæðismála - 30.12.2005

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um breytingu á reglugerð um varasjóð húsnæðismála. Lesa meira
 

Reynsla og viðhorf flóttamanna á Íslandi - 29.12.2005

Niðurstöður könnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur unnið fyrir flóttamannaráð. Lesa meira
 

Reglugerð um fasteignaskatt - 28.12.2005

Í kjölfar breytinga á II. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga hefur félagsmálaráðuneytið, í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Fasteignamat ríkisins, endurskoðað reglugerð um fasteignaskatt. Lesa meira
 

Samningur um Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd - 22.12.2005

Félagsmálaráðuneytið á aðild að samstarfssamningi sem sjö aðilar hafa gert við félagsvísindadeild Háskóla Íslands um stofnun og rekstur Rannsóknaseturs í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafaskor Háskóla Íslands. Lesa meira
 

Stofnun innflytjendaráðs og nefndar um flóttafólk - 20.12.2005

Félagsmálaráðherra hefur skipað innflytjendaráð til fjögurra ára. Ennfremur hefur verið skipuð nefnd um flóttafólk sem tekur við af flóttamannaráði. Lesa meira
 

Framlög 2006 - 19.12.2005

Á fundi ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 9. desember sl. samþykkti nefndin eftirfarandi tillögur um áætlanir framlaga fyrir árið 2006. Lesa meira
 

Þrennar sameiningarkosningar fyrirhugaðar - 16.12.2005

Fyrirhugað er að kosið verði um sameiningu sveitarfélaga á þremur stöðum í upphafi árs 2006, að frumkvæði viðkomandi sveitarstjórna.
Lesa meira
 

Hækkun á framlögum til sveitarfélaga - 14.12.2005

Félagsmálaráðherra samþykkir tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um tæplega 700 m.kr. hækkun á framlögum úr sjóðnum til sveitarfélaga. Lesa meira
 

Framtíð í nýju landi eins árs - 14.12.2005

Framtíð í nýju landi
Þann 1. desember s.l. varð Framtíð í nýju landi eins árs. Þetta er þriggja ára tilraunaverkefni sem beinist að ungmennum af asískum uppruna á aldrinum 15–25 ára. Lesa meira
 

Skýrsla um þróun fasteignaverðs á Íslandi – skýringar og tillögur - 14.12.2005

Nú liggur fyrir skýrsla nefndar sem falið var að fjalla um þróun fasteignaverðs á Íslandi. Nefndin var skipuð af iðnaðar- og viðskiptaráðherra Valgerði Sverrisdóttur í framhaldi af samþykkt þingsályktunar á Alþingi um málið. Lesa meira
 

Tillögur tekjustofnanefndar orðnar að lögum - 12.12.2005

Þann 9. desember sl. voru afgreidd sem lög frá Alþingi þrjú lagafrumvörp sem fela í sér breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga. Öll voru frumvörpin lögð fram í samræmi við tillögur tekjustofnanefndar sem félagsmálaráðherra skipaði árið 2003 og skilaði tillögum 17. mars 2005.

Lesa meira
 

Yfirlýsing félagsmálaráðherra vegna dóms Hæstaréttar - 8.12.2005

Vegna dóms Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur gegn íslenska ríkinu vill Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, taka fram eftirfarandi:

Lesa meira

 

Karlar um borð - 7.12.2005

Karlar um borð

Karlaráðstefna um jafnréttismál var haldin í Salnum í Kópavogi, fimmtudaginn 1. desember síðastliðinn. Á vef félagsmálaráðuneytisins er nú hægt að nálgast stafræna upptöku af fyrirlestrum sem fluttir voru á ráðstefnunni.

Lesa meira
 

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur 3. tbl. 2005 - 7.12.2005

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs 3. tbl. 3. árg.
Í nýju fréttabréfi um húsaleigubætur, sem Jöfnunarsjóður sveitarfélaga gefur út og birt er á vef félagsmálaráðuneytisins, kemur fram að sveitarfélögin ofáætluðu greiðslur sínar til húsaleigubóta á fyrstu þremur ársfjórðungum 2005 um 12,5%. Lesa meira
 

Starfshópur um vottun jafnra launa skipaður - 2.12.2005

Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Avion Group, Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, Fanný Gunnarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs, Orri Hlöðversson bæjarstjóri og Elín Blöndal, forstöðumaður Rannsóknarseturs í vinnurétti og jafnréttismálum við Viðskiptaháskólann á Bifröst, eiga sæti í samráðshópi sem Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur skipað til að undirbúa vottun jafnra launa hér á landi.

Lesa meira

 

Alþjóðleg ráðstefna haldin í kjölfar „Karla um borð“ - 1.12.2005

Karlar um borð
Um 200 karlar sátu ráðstefnuna Karlar um borð, fyrstu ráðstefnu íslenskra karla um jafnréttismál, sem haldin var í Salnum í Kópavogi í morgun. Frú Vigdís Finnbogadóttir var eina konan meðal ráðstefnugesta. Í ályktun fundarins segir að fundurinn skori á karla heimsins að taka jafnréttismálin föstum tökum og mæta til alþjóðlegrar ráðstefnu um karla og jafnréttismál á Íslandi næsta haust. Lesa meira
 

Framboðslistar við sveitarstjórnarkosningar í A- Húnavatnssýslu - 29.11.2005

Sveitarstjórnarkosningar sameinaðra hreppa, Bólstaðarhlíðar-, Sveinsstaða-, Svínavatns- og Torfalækjarhrepps, fara fram laugardaginn 10. desember 2005. Auk þess verður kosið um nýtt nafn á sveitarfélagið.

Lesa meira

 

Athugun eftirlitsnefndar á ársreikningum sveitarfélaga 2004 - 29.11.2005

Í samræmi við ákvæði VI. kafla sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, og reglugerðar um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga nr. 374/2000, hefur eftirlitsnefndin yfirfarið ársreikninga sveitarfélaga fyrir árið 2004 með hliðsjón af fjárhagsáætlun ársins og fjárhagsáætlun fyrir árið 2005.

Lesa meira
 

Ráðstefna eingöngu ætluð körlum - 25.11.2005

Karlaráðstefna um jafnréttismál verður haldin í Salnum í Kópavogi, fimmtudaginn 1. desember næstkomandi frá kl. 9-12. Ráðstefnan er eingöngu ætluð körlum, með þeirri undantekningu að frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, mun ávarpa ráðstefnuna og sitja hana sem verndari og heiðursgestur. Karlar eru hins vegar hvattir til að sækja ráðstefnuna og er aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.

Lesa meira

 

Breyting á reglugerð um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf - 22.11.2005

Félagsmálaráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf, nr. 522/2004, með síðari breytingum. Einnig hefur ráðherra undirritað reglugerð um gjaldskrá Íbúðalánasjóðs.

Lesa meira
 

Að neyta eða njóta jólanna? - 22.11.2005

Merki Fjölskylduráðs
Fjölskylduráð vill hvetja til umræðu um jólahald íslenskra fjölskyldna og stendur því fyrir tveimur fundum undir yfirskriftinni: Að neyta eða njóta jólanna. Lesa meira
 

Börn með sérþarfir og fjölskyldur þeirra - 21.11.2005

Dagana 31. október og 1. nóvember stóð félagsmálaráðuneytið fyrir ráðstefnu um börn með sérþarfir og fjölskyldur þeirra, í samvinnu við NSH (Nordiska samarbetsorganet för handikappfrågor) og vinnu- og félagsmálaráðuneytið í Noregi. Lesa meira
 

Jafnréttisráðherrafundur í Birmingham 8.–9. nóvember 2005 - 18.11.2005

Jafnréttisráðherrar Evrópuríkjanna komu til fundar í Birmingham 8. og 9. nóvember sl. en Englendingar fara nú með formennsku í Evrópusamstarfinu. Lesa meira
 

Skýrsla samráðshóps um heimilislausa - 18.11.2005

Samráðshópur félagsmálaráðherra um heimilislausa hefur skilað skýrslu um aðstæður húsnæðislausra í Reykjavík. Lesa meira
 

Félagsmálaráðuneyti og Reykjavíkurborg semja um móttöku flóttafólks - 17.11.2005

Félagsmálaráðuneyti og Reykjavíkurborg semja um móttöku flóttafólks
Árni Magnússon félagsmálaráðherra og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri undirrituðu í dag samning um móttöku og þjónustu við flóttafólk á næsta ári. Lesa meira
 

Skýrsla nefndar um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir - 16.11.2005

Skýrsla nefndar um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir hefur nú verið gerð opinber og er að finna hér á vef ráðuneytisins. Meðal helstu tillagna í skýrslunni eru hugmyndir um endurskoðun stjórnsýslu á þessu sviði, ásamt tillögum um auknar vinnumarkaðsaðgerðir og tekjutengingu atvinnuleysisbóta.

Lesa meira
 

Ríkisstjórn samþykkir frumvarp félagsmálaráðherra um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga - 16.11.2005

Í frumvarpinu eru einkum lagðar til tvær breytingar í samræmi við tillögur nefndar um endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga frá 17. mars 2005. Lesa meira
 

Innflytjendaráð skipað - 15.11.2005

Félagsmálaráðherra hefur skipað Innflytjendaráð, sem hefur það meginverkefni að fjalla um helstu atriði er snerta aðlögun útlendinga að íslensku samfélagi. Lesa meira
 

Ríkisstjórn samþykkir frumvarp félagsmálaráðherra um breytingu á lögum um húsnæðismál - 14.11.2005

Í frumvarpinu, sem samið er í samræmi við 3. lið tillagna nefndar um endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga frá 17. mars 2005, er lagt til að Varasjóði húsnæðismála verði heimilað að auka árleg rekstrar- og söluframlög vegna félagslegra íbúða í eigu sveitarfélaga um allt að 280 m.kr. á árunum 2005 til 2007, eða alls 840 m.kr. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 9.11.2005

Hæfi fulltrúa í skipulagsnefnd, aðild að félagasamtökum, röð varamanna í nefndum, fundarboðanir. Lesa meira
 

Niðurstöður sameiningarkosninga 5. nóvember - 8.11.2005

Þann 5. nóvember fóru fram atkvæðagreiðslur í fimm sveitarfélögum um sameiningu sveitarfélaga á grundvelli á 2. mgr. IV. bráðabirgðaákvæðis við sveitarstjórnarlög nr. 45/1998. Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga - 4.11.2005

Sameiningarkosningar 2005
Á morgun, laugardaginn 5. nóvember, fer fram atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga í eftirtöldum sveitarfélögum. Lesa meira
 

Ný reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum - 31.10.2005

Félagsmálaráðherra hefur sett nýja reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum, nr. 907/2005. Reglugerðin tekur til gæslu dagforeldra á börnum í atvinnuskyni í heimahúsum og kemur í stað reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum, nr. 198/1992. Lesa meira
 

Þróun löggjafar um fæðingar- og foreldraorlof á Norðurlöndum - 26.10.2005

Þróun löggjafar um fæðingarorlof
Þróun löggjafar um fæðingarorlof á Norðurlöndum og reynsla þjóðanna er heiti skýrslu sem Jafnréttisstofa hefur gefið út í rafrænu formi og er nú aðgengileg hér á vef félagsmálaráðuneytisins. Lesa meira
 

Ráðstefna um börn með sérþarfir og fjölskyldur þeirra - 25.10.2005

Dagana 31. október og 1. nóvember stendur félagsmálaráðuneytið fyrir ráðstefnu um börn með sérþarfir og fjölskyldur þeirra, í samvinnu við NSH (Nordiska samarbetsorganet för handikappfrågor) og vinnu- og félagsmálaráðuneytið í Noregi. Lesa meira
 

2005 er merkilegt ár í sögu jafnréttismála - 24.10.2005

Árið 2005 er merkilegt ár í sögu jafnréttismála bæði alþjóðlega og á Íslandi. Eftirfarandi áfanga úr sögu jafnréttisbaráttunnar er minnst á þessu ári: Lesa meira
 

Jafnréttissjóður stofnaður í tilefni kvennafrídagsins - 24.10.2005

Til þess að undirstrika samstöðu með konum um land allt á afmæli kvennafrídagsins ákvað ríkisstjórnin síðastliðinn föstudag að veita 10 milljónum króna til þess að stofna sérstakan rannsóknarsjóð, Jafnréttissjóð, sem ætlað er að veita fé til rannsókna á grundvelli umsókna á kvennafrídegi ár hvert, þann 24. október, og í fyrsta sinn þann 24. október árið 2006. Markmiðið er að tryggja að hér á landi verði unnar vandaðar kynjarannsóknir en sérfræðingar telja að kynjarannsóknir geti verið lykill að bættri stöðu kvenna og breyttri karlamenningu og þ. a. l. framgangi jafnréttis.

Lesa meira

 

Til hamingju með daginn, konur - 24.10.2005

Félagsmálaráðuneytið óskar íslenskum konum til hamingju með 30 ára afmæli kvennafrídagsins, 24. október 1975. Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, hvetur allar konur, sem þess eiga nokkurn kost, til þátttöku í deginum. Jafnframt skorar ráðherra á kynbræður sína að stuðla að sem bestri þátttöku í deginum með því að axla aukna ábyrgð á vinnustað og heimili. Lesa meira
 

Rætt um kvennafrídag á fundi félagsmálaráðherra með forstöðumönnum - 21.10.2005

Árni Magnússon félagsmálaráðherra átti í dag fund með forstöðumönnum stofnana félagsmálaráðuneytisins. Þar beindi hann þeim tilmælum til forstöðumanna að konur í starfsliði stofnananna fái tækifæri til að taka þátt í dagskrá vegna 30 ára afmælis kvennafrídagsins á mánudag, 24. október.

Lesa meira
 

Sveitarstjórnarkosningar í Austur-Húnavatnssýslu 10. desember 2005 - 20.10.2005

Hinn 10. desember nk. verða sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Bólstaðarhlíðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps í umdæmi sýslumannsins á Blönduósi. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 17. október sl.

Lesa meira

 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sameiningarkosninga 5. nóvember 2005 - 18.10.2005

Endurtaka skal atkvæðagreiðslu í eftirtöldum sveitarfélögum þar sem meiri hluti þeirra sem afstöðu tók í atkvæðagreiðslu um sameiningartillögu þann 8. október lýsti sig fylgjandi sameiningu sveitarfélaganna. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna endurtekinnar atkvæðagreiðslu er þegar hafin. Lesa meira
 

Ríkisstjórnin undirbýr aðgerðir gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi - 18.10.2005

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu félagsmálaráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra, að hafin verði skoðun á því með hvaða hætti megi standa að gerð og framkvæmd heildstæðrar aðgerðaáætlunar gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi hér á landi. Lagt er til að sjónum verði sérstaklega beint að börnum sem verða fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis. Sérstaklega verði skoðað hvernig styrkja megi barnaverndaryfirvöld, félagsmálayfirvöld, skóla, heibrigðiskerfið, lögregluna og fleiri með það að markmiði að efla fræðslu og samhæfa vinnubrögð, verkferla og úrræði þessara aðila.

Lesa meira

 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 17.10.2005

Ákvörðun um að ráða ekki í auglýsta stöðu. Lesa meira
 

Netspjall – aukin þjónusta hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna - 17.10.2005

Netspjall Ráðgjafarstofu
Netspjall er viðbót við aðra þjónustu Ráðgjafarstofunnar. Með Netspjalli er unnt að komast í beint netsamband við starfsmenn Ráðgjafarstofu á opnunartíma stofunnar, sem er frá kl. 9:00-12:00 og 13:00-15:00 alla virka daga. Lesa meira
 

Umfjöllun um ráðstefnu í Sankti Pétursborg - 14.10.2005

Dagana 6.–8. október var haldin í Sankti Pétursborg í Rússlandi ráðstefnan „WoMen and Democracy“. Þetta var fjórða og síðasta ráðstefnan í ráðstefnuröð með sama heiti.

Lesa meira
 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 11.10.2005

Innheimta fasteignaskatts, heimild til niðurfellingar vaxta, jafnræðisregla; ákvörðun um skólaakstur, vanhæfi; boðun varamanna, hæfi, fundarstjórn oddvita, undirritun fundargerðar o.fl. Lesa meira
 

Suðurnes - 9.10.2005

reykjanes

Sameiningartillaga samþykkt í Hafnarfirði en hafnað í Vatnsleysustrandarhreppi.

Lesa meira
 

Niðurstöður sameiningarkosninga 8. október 2005 - 9.10.2005

Alls voru kjósendur á kjörskrá 69.144 en atkvæði greiddu 22.271 sem gerir 32,2% kjörsókn. 9.622 voru fylgjandi sameiningu (43,8%) en 12.335 andvígir (56,2%). Auðir og ógildir seðlar voru 315. Lesa meira
 

Árnessýsla- Ölfus og Flói - 9.10.2005

Ölfus og flói

Tillaga um sameiningu sveitarfélaga í Ölfusi og Flóa felld af íbúum í öllum sveitarfélögunum.

Lesa meira
 

Fjögur sveitarfélög á Austfjörðum sameinast - 8.10.2005

Austfirðir

Íbúar Fáskrúðsfjarðarhrepps, Mjóafjarðarhrepps, Austurbyggðar og Fjarðabyggðar hafa samþykkt tillögu um sameiningu sveitarfélaganna.

Lesa meira
 

Eyjafjörður - 8.10.2005

Eyjafjörður

Sameiningartillaga felld á Akureyri, í Dalvíkurbyggð, Grýtubakkahreppi, Svalbarðsstrandarhreppi, Eyjafjarðarsveit, Hörgárbyggð og Arnarneshreppi, en samþykkt Siglufjarðarkaupstað og Ólafsfjarðarkaupstað.

Lesa meira
 

Snæfellsnes - 8.10.2005

snaefellsnes

Sameiningartillaga felld í öllum sveitarfélögum á Snæfellsnesi.

Lesa meira

 

Skagafjörður - 8.10.2005

Skagafjörður

Sameiningartillaga felld í bæði Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi

Lesa meira
 

Suður- og Norður- Þingeyjarsýslur - 8.10.2005

Suður Þingeyjarsýsla

Sameining samþykkt á Húsavík, Raufarhöfn og í Öxarfjarðarhreppi, en tillagan var felld í Skútustaðahreppi, Kelduneshreppi, Tjörneshreppi og Aðaldælahreppi.

Lesa meira

 

Suður- og Norður- Þingeyjarsýslur - 8.10.2005

Sameining samþykkt á Húsavík, Raufarhöfn og í Öxarfjarðarhreppi, en tillagan var felld í Skútustaðahreppi, Kelduneshreppi, Tjörneshreppi og Aðaldælahreppi.

Lesa meira

 

Austur- Húnavatnssýsla - 8.10.2005

Austur-Húnvatnssýsla

Íbúar í Höfðahrepps, Skagabyggðar og Áshrepps felldu tillögu um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu, en tillagan var samþykkt af íbúum í Blönduósbæ.

Lesa meira
 

Hrútafjörður - 8.10.2005

Strandasýsla og Vestur-Húnavatnssýsla

Íbúar Húnaþings vestra samþykktu sameiningu sveitarfélaga við Hrútafjörð, en íbúar Bæjarhrepps höfnuðu tillögunni.

Lesa meira
 

Hrútafjörður - 8.10.2005

Íbúar Húnaþings vestra samþykktu sameiningu sveitarfélaga við Hrútafjörð, en íbúar Bæjarhrepps höfnuðu tillögunni.

Lesa meira
 

Reykjanes - 8.10.2005

reykjanes

Íbúar Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykktu tillögu um sameiningu sveitarfélagsins við Vatnsleysustrandarhrepp, en íbúar Vatnsleysustrandarhrepps höfnuðu tillögunni.

Lesa meira

 

Strandasýsla - 8.10.2005

Strandasýsla
Íbúar Hólmavíkurhrepps, Kaldrananeshrepps og Árneshrepps höfnuðu tillögu um sameiningu sveitarfélaga í Strandasýslu, en íbúar Broddaneshrepps samþykktu.

Lesa meira

 

Árnessýsla- uppsveitir - 8.10.2005

Árnessýsla
Íbúar Bláskógabyggðar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykktu sameiningu sveitarfélaganna í uppsveitum Árnessýslu, en íbúar í Hrunamannahreppi og Grímsnes- Grafningshreppi höfnuðu. Lesa meira
 

Dalasýsla og Austur- Barðastrandarsýsla - 8.10.2005

Dalasýsla
Íbúar Dalabyggðar og Saurbæjarhrepps samþykktu sameiningu, en íbúar Reykhólahrepps felldu. Íbúar Reykhólahrepps fá því tækifæri til að kjósa aftur um sömu tillögu innan 6 vikna. Lesa meira
 

Vestur- Barðastrandarsýsla - 8.10.2005

Vestur-Barðastrandasýsla
Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í Vestur- Barðastrandarsýslu hefur tilkynnt úrslit atkvæðagreiðslu um sameiningu Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Lesa meira
 

Norður- Þingeyjarsýsla - 8.10.2005

Norður-Þingeyjarsýsla
Íbúar Svalbarðshrepps felldu tillögu um sameiningu við Þórshafnarhrepp. Lesa meira
 

Norður- Múlasýsla - 8.10.2005

Norður-Múlasýsla
Íbúar Vopnafjarðarhrepps felldu sameiningu við Skeggjastaðahrepp. Lesa meira
 

Um úrslit atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaga - 7.10.2005

Sameining sveitarfélaga

Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða í hverju sveitarfélagi sker úr um hvort það sameinast.

Lesa meira
 

Áætluð úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2005 - 7.10.2005

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum þann 30. september sl. tillögu að áætlun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2005 á grundvelli 12. gr. reglugerðar nr. 113/2003. Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga - 6.10.2005

Úrslit verða birt á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins eftir lokun kjörstaða á laugardag. Lesa meira
 

Kosningaréttur erlendra ríkisborgara í atkvæðagreiðslum um sameiningu sveitarfélaga - 5.10.2005

Leiðbeiningar fyrir erlenda ríkisborgara í tengslum við atkvæðagreiðslur um sameiningu sveitarfélaga þann 8. október næstkomandi. Lesa meira
 

Sameiningarkosningar á laugardag - um 70 þúsund manns á kjörskrá - 5.10.2005

Sameiningarkosningar 2005
Næstkomandi laugardag, 8. október, fara fram atkvæðagreiðslur um 16 sameiningartillögur í 61 sveitarfélagi. Tillögurnar varða um 96 þúsund manns vítt og breitt um landið, en á kjörskrá eru 69.144. Lesa meira
 

600 fylgdust með ráðherraspjalli í gær - 4.10.2005

Ráðherraspjall
Um sexhundruð einstaklingar sóttu heim vef félagsmálaráðuneytins í gær til að fylgjast með ráðherraspjallinu. Lesa meira
 

Ráðherraspjall - 1.10.2005

Ráðherraspjall
Félagsmálaráðherra stendur fyrir ráðherraspjalli á Samskiptatorgi félagsmálaráðuneytisins frá kl. 14-15 mánudaginn 3. október nk. Lesa meira
 

Ársfundur Vinnumálastofnunar 2005 - 29.9.2005

Ársfundur Vinnumálastofnunar verður haldinn í dag, fimmtudaginn 29. september. Fundurinn stendur frá kl. 14-16. Lesa meira
 

Vextir Íbúðalánasjóðs af lánum til leiguíbúða og endurgreiðsla ríkissjóðs til Íbúðalánasjóðs vegna vaxtamunar - 27.9.2005

Félagsmála­ráðherra og fjármála­ráðherra hafa orðið sammála um eftirfarandi varðandi lán Íbúða­lánasjóðs til leigu­íbúða. Lesa meira
 

Rannsóknarsetur vinnuréttar og jafnréttismála - 26.9.2005

Stjórn
Fyrsti fundur stjórnar Rannsóknarseturs vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst var haldinn 23. september sl. Setrið starfar á grundvelli samstarfssamnings á milli félagsmálaráðherra og Viðskiptaháskólans. Lesa meira
 

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar - 26.9.2005

Í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og félagsmálaráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar. Prófnefnd leigumiðlara heldur námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar í október-nóvember nk. ef næg þátttaka fæst.

Lesa meira
 

Notendur velferðarþjónustu - þátttakendur - ekki þiggjendur - 21.9.2005

Málþing haldið að Hótel Loftleiðum, 30. september 2005. Lesa meira
 

Velferð frá vöggu til grafar - 21.9.2005

Málþing sveitarfélaga um velferðarmál
Málþing sveitarfélaga um velferðarmál verður haldið 29. september 2005 í Salnum, Kópavogi á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga í samvinnu við félagsmálaráðuneytið og Samtök félagsmálastjóra. Lesa meira
 

Breyting á reglugerð um fjárhag og áhættustýringu Íbúðalánasjóðs - 21.9.2005

Félagsmálaráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um fjárhag og áhættustýringu Íbúðalánasjóðs, nr. 544/2004. Af gefnu tilefni skal tekið fram að með breytingunni er ekki verið að víkka heimildir Íbúðalánasjóðs að einu eða neinu leyti.

Lesa meira
 

Samskiptatorg félagsmálaráðuneytisins - 16.9.2005

Sameining sveitarfélaga
Félagsmálaráðuneytið hefur opnað sérstakt Samskiptatorg. Væntanlegar atkvæðagreiðslur um sameiningu sveitarfélaga er kjörið tækifæri til þess að gefa almenningi kost á að skiptast á skoðunum um sameiningarmál og standa vonir til þess að sem flestir láti í sér heyra og taki þátt í uppbyggilegri umræðu. Lesa meira
 

Nefnd um endurskoðun Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - 16.9.2005

Að tillögu tekjustofnanefndar frá 17. mars 2005 hefur félagsmálaráðherra skipað nefnd til að endurskoða III. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, er fjallar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Lesa meira
 

Allt að 2,4 milljarðar króna til sameiningar sveitarfélaga - 16.9.2005

Í tengslum við átak til eflingar sveitarstjórnarstigsins og í samræmi við sameiginlega viljayfirlýsingu félagsmálaráðherra, fjármálaráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17. september 2004 og tillögur tekjustofnanefndar frá mars 2005, verður allt að 2.400 milljónum króna varið til sameiningarframlaga á árunum 2005 til 2009 í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga á grundvelli úthlutunarreglna sjóðsins. Lesa meira
 

Starfshópur um efni gerða um bann við mismunun - 13.9.2005

Að tillögu félagsmálaráðherra hefur ríkisstjórnin samþykkt að skipaður verði starfshópur sem ætlað er að fjalla um með hvaða hætti endurspegla megi efni gerða Evrópusambandsins um bann við mismunun að þeim reglum sem gilda á innlendum vinnumarkaði. Lesa meira
 

Forvarnir í fjármálum - 13.9.2005

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna og Akureyrarkaupstaður vinna saman að forvörnum í fjármálum fyrir 10. bekkinga í grunnskólum Akureyrar. Lesa meira
 

Íbúaþing um sameiningartillögu í uppsveitum Árnessýslu - 7.9.2005

Í erindi sínu lagði félagsmálaráðherra áherslu á að nú gæfist sveitarstjórnarmönnum og íbúum gott tækifæri til þróa nýtt sveitarfélag með sameiginlega framtíðarsýn fyrir svæðið. Hann undirstrikaði að verulegir fjármunir hafi verið settar til hliðar til að styðja við sameiningur sveitarfélaga, eða allt að 2.400 milljónir króna. Lesa meira
 

Tilkynning um breytt verklag - 7.9.2005

Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun hafa ákveðið í samráði við ráðuneyti dómsmála og félagsmála að breyta verklagi við afgreiðslu umsókna frá ríkisborgurum hinna átta nýju aðildarríkja EES-samningsins. Lesa meira
 

Framlög vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti - 2.9.2005

Komin er niðurstaða í útreikning á framlögum til sveitarfélaga á grundvelli reglugerðar, nr. 80/2001 með síðari breytingum, um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2005. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 1.9.2005

Lausn frá hreppsnefndarstörfum, endurskoðun ákvörðunar hreppsnefndar. Synjun sveitarstjórnar á breytingu skipulags, frávísun. Lesa meira
 

Skýrsla Íslands um framkvæmd alþjóðasamnings um afnám alls kynþáttamisréttis - 1.9.2005

Vakin er athygli á frétt á heimasíðu dómsmálaráðuneytis um niðurstöður nefndar Sameinuðu þjóðanna sem fylgist með framkvæmd á Íslands á alþjóðasamningi um afnám alls misréttis. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 26.8.2005

Álagning B-gatnagerðargjalds vegna endurnýjunar gangstéttar, skortur á lagastoð; framkvæmd útdráttar, reglur sveitarfélags um úthlutun byggingarlóða. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 17.8.2005

Ráðning í stöðu skólastjóra, úthlutun styrkja til tónlistarskóla. Lesa meira
 

Þjónustusamningur - 10.8.2005

Nýr þjónustusamningur
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna og Svæðisvinnumiðlun Vesturlands, Akraneskaupstað og Verkalýðsfélag Akraness undirrita þjónustusamning. Lesa meira
 

Lögfræðingur - 10.8.2005

Laus er til umsóknar staða lögfræðings hjá sveitarstjórnarskrifstofu félagsmálaráðuneytisins. Lesa meira
 

Sameiningarkosningar 8. október 2005 - 8.8.2005

Sameining sveitarfélaga
Þann 8. október næstkomandi munu 16 sameiningarkosningar fara fram í 61 sveitarfélögum vítt og breitt um landið. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þeirra hefst þann 13. ágúst næstkomandi. Lesa meira
 

2. fundur verkefnisstjórnar 50+ um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði - 1.8.2005

Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Annar fundur af þremur verður haldinn á Grand hótel, Hvammi þann 9. nóvember næstkomandi klukkan 8.30?10.00. Lesa meira
 

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur 2. tbl. 2005 - 18.7.2005

Í 2. tölublaði af fréttabréfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur á árinu 2005, sem nú er komið út, er fjallað um greiðslur bótanna á I. ársfjórðungi. Lesa meira
 

Afstaða Eyfirðinga til sameiningar sveitarfélaganna - 14.7.2005

Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri hefur gefið út skýrslu þar sem gerð er ítarlegri grein fyrir afstöðu Eyfirðinga til sameiningarmála en áður hefur verið gert. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 11.7.2005

Ákvörðun sveitarstjórnar um að úthluta lóðum í stað þess að selja þær hæstbjóðendum, frávísun. Lesa meira
 

Sólheimar í Grímsnesi - 6.7.2005

Sólheimar í Grímsnesi halda upp á 75 ára afmæli
Sólheimar í Grímsnesi héldu upp á 75 ára afmæli sitt þann 5. júlí sl. Við það hátíðlega tækifæri tók Árni Magnússon félagsmálaráðherra skóflustungu fyrir nýju húsnæði sem mun hýsa mötuneyti og aðra þjónustu við íbúa Sólheima. Lesa meira
 

Íbúaþing um sameiningu sveitarfélaga í uppsveitum Árnessýslu - 6.7.2005

fra_fludum
Á íbúaþinginu var tónninn lagður fyrir frekari umræðu um sameiningu sveitarfélaganna fjögurra, en ljóst er að íbúar svæðisins hafa sameiginlega framtíðarsýn. Lesa meira
 

Ný þjónusta á vef félagsmálaráðuneytisins - 30.6.2005

Svarbox félagsmálaráðuneytisins
Félagsmálaráðuneytið hefur sett af stað tilraunaverkefni sem ætlað er að auka og einfalda aðgengi að afgreiðslu ráðuneytisins með því að gefa almenningi og fyrirtækjum kost á því að komast í beint samband við starfsmenn um heimasíðu ráðuneytisins. Lesa meira
 

Launajafnrétti kynjanna - 28.6.2005

Skiptir skeggrótin máli
Félagsmálaráðherra og Jafnréttisstofa hafa sent út bréf til forsvarsmanna fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga þar sem minnt var á ákvæði laga nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, sem fjalla um launajafnrétti kynjanna. Lesa meira
 

Fjölþjóðleg ráðstefna um húsnæðis- og borgarmál - 27.6.2005

Ráðstefna um húsnæðis- og borgarmál
Fjölþjóðleg ráðstefna um húsnæðis- og borgarmál verður haldin Öskju náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands dagana 29. júní - 2. júlí. Lesa meira
 

Úthlutun 200 millj. kr. til sveitarfélaga í sérstökum fjárhagsvanda - 23.6.2005

Í samræmi við 3. gr. reglna nr. 1021 frá 16. desember 2004, um ráðstöfun 400 millj. kr. aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, hefur jöfnunarsjóður úthlutað 200 millj. kr. til sveitarfélaga sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur metið að séu í sérstökum fjárhagsvanda.

Lesa meira

 

Stuðningur við sameiningu sveitarfélaga - 23.6.2005

Félagsmálaráðherra hefur að tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sett reglur um breytingu á reglum um fjárhagslega aðstoð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga. Auk þess hefur ráðgjafarnefndin sett sérstakar vinnureglur um úthlutun framlaga skv. a-lið 1. gr. reglnanna. Lesa meira
 

93. Alþjóðavinnumálaþingið í Genf - 22.6.2005

Tillaga að nýrri alþjóðasamþykkt um vinnuskilyrði fiskimanna náði ekki fram að ganga.

Lesa meira
 

Í tilefni yfirlýsinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) varðandi starfsemi Íbúðalánasjóðs - 14.6.2005

Fulltrúar félagsmálaráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs hafa undanfarna daga átt gagnlega fundi og ágætar viðræður við fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, International Monetary Fund (IMF) sem staddir eru hér á landi. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 13.6.2005

Aðgangur kjörinna fulltrúa að upplýsingum um laun starfsmanna sveitarfélags. Lesa meira
 

Málþing um Vestnorrænar velferðarrannsóknir - 13.6.2005

Erindi flutt á málþingi í Norræna húsinu um Vestnorrænar velferðarrannsóknir Lesa meira
 

Ársskýrsla Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna - 9.6.2005

Ársskýrsla 2004
Ársfundur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var haldinn í dag á Grand Hóteli við Sigtún í Reykjavík. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 7.6.2005

Röð varamanna þegar listi er ekki borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálasamtökum. Lesa meira
 

Sameiningartillaga felld öðru sinni - 6.6.2005

Skorradalshreppur verður því áfram sérstakt sveitarfélag, en hinum sveitarfélögunum fjórum er heimilt að samþykkja sameiningu þeirra sveitarfélaga. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 3.6.2005

Ráðning í stöðu hafnarvarðar, rannsóknarskylda stjórnvalds, rökstuðningur. Synjun um endurnýjun starfsleyfis dagmóður, fullnaðarákvörðun, rökstuðningur. Lesa meira
 

Vestnorrænar velferðarrannsóknir - 1.6.2005

Á morgun 2. júní verður haldið í Norræna húsinu málþing um Vestnorrænar velferðarrannsóknir. Lesa meira
 

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur 1. tbl. 2005 - 1.6.2005

Fréttabréf 1.tbl. 3. árg - 2005
Í 1. tölublaði af fréttabréfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur.á árinu 2005 er að finna ýmsar tölulegar upplýsingar um greiðslur bótanna á árinu 2004 í samanburði við árið 2003. Lesa meira
 

Úthlutun úr starfsmenntasjóði - 1.6.2005

Starfsmenntaráð
Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins, sem starfar skv. lögum nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu, hefur úthlutað vegna ársins 2005 rúmlega 48 milljónum króna úr starfsmenntasjóði til 42 verkefna. Lesa meira
 

Flóttafólk frá Suður Ameríku og lýðveldum fyrrum Júgóslavíu - 1.6.2005

Að tillögu félagsmálaráðherra samþykkti ríkisstjórnin í gær að tekið verði á móti flóttafólki frá Suður Ameríku og lýðveldum fyrrum Júgóslavíu á árinu 2005. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 25.5.2005

Sala á námuréttindum í eigu sveitarfélags, jafnræðisregla. Framkvæmd lokaðs útboðs, heimild til skipunar starfshóps um val á verktaka. Lesa meira
 

Kosið um sameiningu í Skorradal þann 4. júní - 25.5.2005

Hreppsnefnd Skorradalshrepps hefur ákveðið í samráði við samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar, að atkvæðagreiðsla um sameiningu hreppsins við Borgarfjarðarsveit, Borgarbyggð, Hvítársíðuhrepp og Kolbeinsstaðahrepp fari fram 4. júní. Lesa meira
 

Norrænn jafnréttisráðherrafundur - 24.5.2005

Norrænn jafnréttisráðherrafundur
Þann 20. maí 2005 var haldinn í Kaupmannahöfn fundur jafnréttisráðherra á Norðurlöndunum. Á fundinum var samþykkt ný samstarfsáætlun um jafnréttissamstarf á Norðurlöndunum tímabilið 2006–2010.  Lesa meira
 

VSFK og Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna undirrita þjónustusamning - 19.5.2005

VSFK og Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna undirrita þjónustusamning
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna undirrita þjónustusamning. Lesa meira
 

Listakonur afhenda myndverk - 10.5.2005

Heimsókn frá Sólheimum
Listakonurnar Sigríður Rut og Ebba Þuríður, íbúar Sólheima, afhentu í dag Árna Magnússyni félagsmálaráðherra myndverk sín sem félagsmálaráðuneytið festi kaup á nýlega. Lesa meira
 

Nýjar reglur reikningsskila- og upplýsinganefndar - 10.5.2005

Félagsmálaráðherra hefur staðfest nýjar reglur reikningsskila- og upplýsinganefndar um meðhöndlun leigusamninga í bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga.

Lesa meira
 

Nýjung á vef átaks um eflingu sveitarstjórnarstigsins - 4.5.2005

Á vef átaks um eflingu sveitarstjórnarstigsins hefur verið sett upp sérstök síða með leiðbeiningum og gögnum fyrir fulltrúa í samstarfsnefndum um sameiningu sveitarfélaga, en sem kunnugt er munu íbúar 66 sveitarfélaga fá tækifæri til að greiða atkvæði um sameiningu þann 8. október næstkomandi. Lesa meira
 

Upplýsingaverkefni í þjónustu við fatlaða - 3.5.2005

Upplýsingaverkefni í þjónustu við fatlaða
Árni Magnússon félagsmálaráðherra og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, undirrituðu í gær samkomulag um sameiginlegt þróunarverkefni varðandi upplýsingaverkefni í þjónustu við fatlaða Lesa meira
 

Fjölskyldustefna og vinnumarkaður - 27.4.2005

Berlín
Ráðstefna í Berlín um fjölskyldustefnu og vinnumarkað á vegum norrænu ráðherranefndarinnar og sendiráða Norðurlandanna fimmtudaginn 21. apríl 2005. Lesa meira
 

Málþing um starfsendurhæfingu - 27.4.2005

Dagana 14. og 15. apríl stóð félagsmálaráðuneytið fyrir fjölmennu málþingi um starfsendurhæfingu, í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og Tryggingastofnun ríkisins. Lesa meira
 

Áætluð almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla 2005 - 27.4.2005

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt tillögu að áætlun um úthlutun almennra jöfnunarframlaga til sveitarfélaga vegna reksturs grunnskóla á árinu 2005, sbr. 3. gr. rgl. nr. 351/2002. Lesa meira
 

Sveitarstjórnir skipa samstarfsnefndir um sameiningu - 27.4.2005

Sveitarstjórnir vítt og breitt um landið eru nú í óða önn að skipa fulltrúa sína í samstarfsnefnd sem skal undirbúa atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaga í samræmi við tillögur sameiningarnefndar. Lesa meira
 

Sameining samþykkt í fjórum sveitarfélögum - 27.4.2005

Íbúar Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps og Kolbeinsstaðahrepps samþykktu tillögu um sameiningu sveitarfélaganna fjögurra, auk Skorradalshrepps. Íbúar Skorradalshrepps höfnuðu aftur á móti tillögunni. Lesa meira
 

Skýrsla nefndar um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi - 26.4.2005

Félagsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun skýrslu nefndar sem fékk það verkefni að útfæra tillögur að stefnumótun í aðlögunarmálum innflytjenda á Íslandi og skilgreina nánar þau verkefni sem brýnust væru.

Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga fer fram nk. laugardag - 20.4.2005

Eins og kunnugt er verða greidd atkvæði nk. laugardag, 23. apríl, um sameiningu sveitarfélaganna Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps, Kolbeinsstaðahrepps og Skorradalshrepps. Lesa meira
 

Opinn íbúafundur í Borgarnesi - 18.4.2005

Þriðjudaginn 19. apríl verður haldinn opinn íbúafundur á Hótel Borgarnesi. Fundurinn er sá síðasti í röð íbúafunda sem haldnir hafa verið til að ræða sameiningu sveitarfélaga í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar. Lesa meira
 

Málþing um starfsendurhæfingu - 13.4.2005

Dagana 14. og 15. apríl stendur félagsmálaráðuneytið fyrir málþingi um starfsendurhæfingu, í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og tryggingastofnun ríkisins. Lesa meira
 

Hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækkar - 12.4.2005

Íbúðalánasjóður
Félagsmálaráðuneytið hefur með reglugerð hækkað hámarkslán Íbúðalánasjóðs. Hámarkslánið verður 15,9 m.kr. í stað 14,9 m.kr. nú og tekur breytingin þegar gildi. Lesa meira
 

Ný reglugerð um vistun barna á vegum annarra en barnaverndarnefnda samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga (sumarbúðir o.fl.). - 12.4.2005

Félagsmálaráðherra hefur sett nýja reglugerð um vistun barna á vegum annarra en barnaverndarnefnda samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga (sumarbúðir o.fl.). Reglugerðin er sett samkvæmt heimild í barnaverndarlögum.

Lesa meira
 

Ný reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga - 7.4.2005

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga, sem samin er af nefnd sem í áttu sæti fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samorku og félagsmálaráðuneyti. Lesa meira
 

Skýrsla sameiningarnefndar - 6.4.2005

Sameiningarnefnd hefur lagt fram tillögur sínar um breytta sveitarfélagaskipan, með það að markmiði að hvert sveitarfélag verði heildstætt atvinnu- og þjónustusvæði. Viðhorfskannanir veita vísbendingar um að mikill meirihluti almennings sé hlynntur sameiningu sveitarfélaga. Lesa meira
 

Viðurkenningar til framsækinna sveitarfélaga - 4.4.2005

Á ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga um nýjungar í stjórnun sveitarfélaga, sem haldin var föstudaginn 1. apríl sl. voru sex sveitarfélögum veittar viðurkenningar fyrir framsækni í stjórnsýslu. Lesa meira
 

Málþing um starfsendurhæfingu - 1.4.2005

Þann 14. og 15. apríl næstkomandi stendur félagsmálaráðuneytið fyrir málþingi um starfsendurhæfingu, í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og tryggingastofnun ríkisins. Lesa meira
 

Fundur félagsmálaráðherra OECD-ríkjanna - 31.3.2005

Frá fundi félagsmálaráðherra OECD-ríkjanna
Sjálfstæður réttur feðra til fæðingarorlofs á Íslandi vekur athygli á fundi félagsmálaráðherra OECD-ríkja sem nú stendur yfir í París. Íslendingar standa mjög framarlega varðandi atvinnuþátttöku kvenna. Félagsmálaráðherra leggur áherslu á jafnar aðstæður kvenna og karla til virkrar þátttöku á vinnumarkaði. Lesa meira
 

Athugasemd frá félagsmálaráðuneyti vegna fréttar Hagstofu Íslands um afkomu sveitarfélaga 2004 - 30.3.2005

Hagstofa Íslands birti í dag, 30. mars, frétt með bráðabirgðauppgjöri hins opinbera fyrir árið 2004. Lesa meira
 

Breyting á reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga - 30.3.2005

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um breytingu á reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, nr. 374/2001, með síðari breytingum. Lesa meira
 

Breyting á sveitarfélagamörkum - 29.3.2005

Félagsmálaráðherra hefur staðfest samkomulag milli Villingaholtshrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps um breytingu á mörkum sveitarfélaganna. Lesa meira
 

Reglugerð um atvinnuréttindi útlendinga - 23.3.2005

Félagsmálaráðherra undirritaði í dag reglugerð um atvinnuréttindi útlendinga og hefur hún verið send í birtingu til Stjórnartíðinda. Lesa meira
 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga - 22.3.2005

Samkvæmt ákvörðun samstarfsnefndar um sameiningu Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps, Kolbeinsstaðahrepps og Skorradalshrepps verða greidd atkvæði um sameiningu þessara sveitarfélaga laugardaginn 23. apríl 2005. Lesa meira
 

Ný lög frá Alþingi um frestun sameiningarkosninga - 22.3.2005

Alþingi samþykkti í gær ný lög um breytingu á sveitarstjórnarlögum. Lesa meira
 

Tillögur tekjustofnanefndar og skýrsla um undanþágur frá fasteignaskatti - 21.3.2005

Tekjustofnanefnd skilaði hinn 17. mars sl. til félagsmálaráðherra tillögum um breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga. Lesa meira
 

Afgerandi stuðningur almennings við sameiningu sveitarfélaga - 18.3.2005

Niðurstöður viðhorfskannana sem IMG Gallup hefur unnið fyrir félagsmálaráðuneytið gefa vísbendingar um að meirihluti almennings sé hlynntur sameiningu sveitarfélaga. Lesa meira
 

Útreikningur á fjárhagslegum áhrifum tillagna tekjustofnanefndar og annarra breytinga á fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga - 17.3.2005

Sveitarstjórnarskrifstofa félagsmálaráðuneytisins hefur lagt mat á fjárhagsleg áhrif tillagna tekjustofnanefndar og annarra breytinga á fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga sem vitnað er til í skýringum með tillögum nefndarinnar.

Þegar horft er til tillagna tekjustofnanefndar og allra breytinga á fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga sem raktar eru í fylgiskjali 1 er ljóst að áhrif tillagnanna eru mjög mikil. Varanleg áhrif, frá og með árinu 2009, eru rúmlega 1,5 milljarða króna árleg tekjuaukning hjá sveitarfélögum. Tímabundin áhrif eru hins vegar um 9,5 milljarðar króna á tímabilinu 2005-2008 (2009).

Lesa meira
 

Fréttatilkynning um eflingu sveitarstjórnarstigsins - 17.3.2005

Vinna við átak um eflingu sveitarstjórnarstigsins, sem staðið hefur frá því á haustmánuðum 2003, er nú komin vel á veg. Um er að ræða samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga sem hófst að frumkvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Lesa meira
 

Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum - 15.3.2005

Félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 45/1998, með síðari breytingum, sem felur í sér að atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga fari fram laugardaginn 8. október 2005. Lesa meira
 

Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga fyrir árið 2005 - 11.3.2005

Alls hafa 86 af 101 sveitarfélagi skilað fjárhagsáætlun fyrir árið 2005 til ráðuneytisins en skv. sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998, með síðari breytingum, skal sveitarstjórn ljúka afgreiðslu fjárhagsáætlunar næsta árs og senda ráðuneytinu fyrir lok desembermánaðar. Lesa meira
 

Könnun á félagslegri stöðu heyrnarlausra - 8.3.2005

Könnun Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri á félagslegri stöðu heyrnarlausra var gerð árið 2004. Lesa meira
 

Fréttabréf 1. tbl. 2005 - 8.3.2005

Fréttabréf 1. tbl. 2005
Meðal efnis: Stækkun og efling sveitarfélaga - ein mesta byggðaaðgerð Íslandssögunnar, viðræður ríkis og sveitarfélaga um breytt hlutverk í húsnæðismálum, sendinefnd frá Malaví í náms- og kynnisferð á Íslandi o.fl. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra á fundi kvennanefndar SÞ - 2.3.2005

Árni Magnússon, félagsmálaráðherra
Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, ávarpaði í gær, 1. mars, 49. fund kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna, sem nú er haldinn í New York. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra leggur fram á Alþingi skýrslu um þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar - 1.3.2005

Í samræmi við stofnskrá Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) hefur félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, lagt fram á Alþingi skýrslu um Alþjóðavinnumálaþingin í Genf sem voru haldin árin 2001–2004. Lesa meira
 

Evrópuþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í Búdapest - 23.2.2005

7. Evrópuþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO)
Dagana 14.–18. febrúar 2005 var haldið 7. Evrópuþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO). Þingið var haldið í Búdapest í Ungverjalandi. Lesa meira
 

Undirritun samkomulags - 18.2.2005

Undirritun samkomulags um hlutverk og rekstur
Árni Magnússon félagsmálaráðherra undirritaði fimmtudaginn 17. febrúar sl. nýtt samkomulag um rekstur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna ásamt öðrum aðilum að rekstrinum. Lesa meira
 

Framlag sveitarfélaga vegna orlofs húsmæðra árið 2005 - 17.2.2005

Félagsmálaráðuneytið auglýsir fjárhæð framlags sveitarfélaga samkvæmt lögum um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, fyrir árið 2005. Lesa meira
 

Jafnréttisráðherrar EES-ríkjanna funda í Lúxemborg - 8.2.2005

Jafnréttisráðherrar ESS-ríkjanna
Félagsmálaráðherra sótti föstudaginn 4. febrúar síðastliðinn fund jafnréttismálaráðherra Evrópusambandsins í Lúxemborg. Íslandi var, ásamt öðrum EFTA- og EES-ríkjum auk fulltrúa þeirra ríkja sem sótt hafa um aðild að ESB, boðin þátttaka. Lesa meira
 

Áætluð útgjaldajöfnunarframlög 2005 - 7.2.2005

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt að leggja til að áætlun um heildarúthlutun úgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2005, sbr. 13. gr. reglugerðar nr. 113/2003, nemi samtals 2.300 m. kr. Lesa meira
 

Nýr formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - 1.2.2005

Herdís Á. Sæmundardóttir varaþingmaður hefur frá 1. febrúar 2005 tekið við formennsku í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga af Húnboga Þorsteinssyni, fyrrverandi skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneytinu. Lesa meira
 

Nýr formaður eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga - 1.2.2005

Sævar Þór Sigurgeirsson, löggiltur endurskoðandi, hefur tekið við formennsku í eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga frá 1. febrúar 2005 af Húnboga Þorsteinssyni. Lesa meira
 

Átak til eflingar sveitarstjórnarstigsins - 26.1.2005

Sameiningarnefnd hvetur alla sveitarstjórnarmenn til að kynna sér sérstaklega þau ákvæði sveitarstjórnarlaganna sem varða átak til eflingar sveitarstjórnarstigsins.

Lesa meira
 

Heimsókn Árna Magnússonar félagsmálaráðherra til Færeyja - 21.1.2005

Heimsókn til Færeyja
Árni Magnússon félagsmálaráðherra heimsótti Færeyjar dagana 19.–21. janúar í boði Hans Pauli Ström, félagsmálaráðherra Færeyja. Lesa meira
 

Sameining sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu - 19.1.2005

Félagsmálaráðuneytið staðfesti hinn 7. janúar sl. sameiningu fjögurra sveitarfélaga í umdæmi sýslumannsins á Blönduósi. Lesa meira
 

Könnun á viðhorfum og aðstæðum innflytjenda á Austurlandi og Vestfjörðum - 18.1.2005

Fjölmenningarsetur hefur í samstarfi við Byggðastofnun, Fjórðungssamband Vestfirðinga, Samband sveitarfélaga á Austurlandi, Alþýðusamband Íslands og Vinnumálastofnun látið gera könnun á viðhorfum og aðstæðum innflytjenda á Vestfjörðum og Austurlandi.

Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 11.1.2005

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Samningur um þjónustu við fatlaða - 6.1.2005

Samningur um þjónustu við fatlaða
Árni Magnússon félagsmálaráðherra og Þengill Oddsson, formaður stjórnar Skálatúnsheimilisins, undirrituðu í dag samning um þjónustu Skálatúns við fatlaða. Lesa meira
 


Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica