Fréttir

Úrskurðir og álit - 27.12.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Ný reglugerð um búsetu fatlaðra - 20.12.2002

Þann 1. janúar 2003 gengur í gildi ný reglugerð um búsetu fatlaðra nr. 296/2002 með síðari breytingum. Frá þeim tíma greiða allir íbúar á sambýlum fatlaðra húsaleigu og eiga jafnframt rétt á húsaleigubótum. Lesa meira
 

Skýrsla samráðsnefndar um húsaleigubætur 2001 - 20.12.2002

Út er komin skýrsla samráðsnefndar um húsaleigubætur fyrir árið 2001. Skýrslan verður að þessu sinni einungis gefin út á netinu og er unnt að nálgast hana á heimasíðu ráðuneytisins.

Lesa meira
 

Undirritun þjónustusamnings - 19.12.2002

Félagsmálaráðuneytið, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík og Styrktarfélag vangefinna gengu í dag frá þjónustusamningi um rekstur þjónustu við fatlaða á höfuðborgarsvæðinu. Lesa meira
 

Aðstæður barna í daggæslu - 18.12.2002

Að kvöldi þann 17. desember sl. kynnti félagsmálaráðuneyti dagmæðrum niðurstöður könnunar um Aðstæður barna hjá dagmæðrum. Um það bil 70 dagmæður sóttu fundinn sem haldinn var í Norræna húsinu. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra styrkir starfsemi Geðhjálpar - 13.12.2002

Páll Pétursson félagsmálaráðherra heimsótti húsakynni Geðhjálpar að Túngötu 7 í gærmorgun og færði félaginu styrk að upphæð þrjár milljónir króna. Lesa meira
 

Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Borgarbyggð - 9.12.2002

Úrslit kosninganna í Borgarbyggð laugardaginn 7. desember sl. voru þannig að B-listi hlaut fjóra menn kjörna, D-listi þrjá menn og L-listi tvo menn. Lesa meira
 

Nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga undirritað - 6.12.2002

Í upphafi samráðsfundar ríkis og sveitarfélaga sl. miðvikudag var undirritað nýtt samkomulag um breytingar á fjárhagslegum samskiptum aðilanna. Lesa meira
 

Nýr samstarfssáttmáli ríkis og sveitarfélaga undirritaður - 6.12.2002

Í upphafi samráðsfundar ríkis og sveitarfélaga sl. miðvikudag var undirritaður nýr samstarfssáttmáli ríkis og sveitarfélaga. Hinn nýi sáttmáli gildir til ársloka 2004 og tekur við af eldri sáttmála sem undirritaður var 4. desember 2000. Lesa meira
 

Framlagning kjörskrár í Borgarbyggð - 27.11.2002

Vakin er athygli kjósenda í Borgarbyggð á því að kjörskrá vegna fyrirhugaðra sveitarstjórnarkosninga 7. desember nk. hefur verið lögð fram. Lesa meira
 

Aðstæður barna hjá dagmæðrum - 26.11.2002

Út er komin á vegum félagsmálaráðuneytis skýrsla um aðstæður barna hjá dagmæðrum. Tæplega 2.400 börn eru í daggæslu í heimahúsum hér á landi, en starfandi dagmæður eru 460. Lesa meira
 

Reikningsskil sveitarfélaga - 22.11.2002

Reikningsskila- og upplýsinganefnd hefur að undanförnu fjallað um svokölluð samstæðureikningsskil sveitarfélaga í þeim tilgangi að samræma framsetningu þeirra eins og kostur er. Lesa meira
 

Uppkosning í Borgarbyggð - 15.11.2002

Dómur Hæstaréttar í gær staðfesti að úrskurður félagsmálaráðuneytisins, um ógildingu sveitarstjórnarkosninganna í Borgarbyggð, standi óhaggaður, þ.e. kosið skal á ný í sveitarfélaginu. Lesa meira
 

Skipulagsbreytingar í félagsmálaráðuneyti - 14.11.2002

Unnið hefur verið að innleiðingu á nýju skipuriti í félagsmálaráðuneytinu. Þá hefur Hermann Sæmundsson verið settur í embætti ráðuneytisstjóra í fjarveru Berglindar Ásgeirsdóttur. Lesa meira
 

Athugasemd vegna fréttar um fjármál Raufarhafnarhrepps - 4.11.2002

Athugasemd frá félagsmálaráðuneytinu við frétt Morgunblaðsins um fjármál Raufarhafnarhrepps sem birtist 2. nóvember 2002. Lesa meira
 

Nýtt sambýli í Reykjavík - 1.11.2002

Í gær þann 31. október opnaði Páll Pétursson félagsmálaráðherra við hátíðlega athöfn nýtt sambýli fyrir fatlaða að Hólmasundi 2 í Reykjavík. Lesa meira
 

Varafélagsmálaráðherra Kína ásamt sendinefnd í heimsókn - 22.10.2002

Varafélagsmálaráðherra Kína, Zhang Yinzhong, er nú í opinberri heimsókn á vegum félagsmálaráðuneytisins ásamt sex manna sendinefnd. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 16.10.2002

Álagning b-gatnagerðargjalds, jafnræðisregla, þörf á að tilkynna fyrirhugaðar framkvæmdir. Lesa meira
 

Karlmennska á Norðurlöndum - 14.10.2002

Vakin er athygli á eftirfarandi frétt sem birt er í rafrænu fréttabréfi Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Lesa meira
 

Þjónustusamningur um verndaða vinnu og starfsþjálfun fatlaðra - 9.10.2002

Félagsmálaráðuneytið, Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra í Reykjavík og Öryrkjabandalag Íslands gengu í dag frá þjónustusamningi um verndaða vinnu og starfsþjálfun fatlaðra. Lesa meira
 

Dómur Héraðsdóms Vesturlands - 8.10.2002

Héraðsdómur Vesturlands hefur fellt úr gildi úrskurð félagsmálaráðuneytisins og því mun uppkosning ekki fara fram 2. nóvember eins og áður var fyrirhugað. Lesa meira
 

Íslenska átaksverkefnið gegn verslun með konur - 7.10.2002

Á fundi ríkisstjórnarinnar var samþykkt sameiginleg tillaga frá félagsmálaráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra um styrkja íslenska átakið gegn verslun með konur. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 4.10.2002

Lögmæti yfirlýsingar bæjarfulltrúa um frávik við boðun varamanna á bæjarstjórnarfundi. Lesa meira
 

Þjónustusamningur um verndaða vinnu og starfsþjálfun - 4.10.2002

Félagsmálaráðuneyti og SÍBS gengu í gær frá fimm ára þjónustusamningi um verndaða vinnu og starfsþjálfun á Múlalundi. Lesa meira
 

Sendinefnd ECRI á Íslandi - 20.9.2002

Von er á sendinefnd frá ECRI til Íslands og mun hún dvelja á landinu dagana 22. til 25. september næstkomandi. Eitt af meginverkefnum nefndarinnar er að kanna ástand og greina vandamál vegna kynþáttafordóma og kynþáttamisréttis í aðildarríkjum Evrópuráðsins. Lesa meira
 

Reglugerð nr. 656/2002 um varasjóð húsnæðismála - 20.9.2002

Í hinni nýju reglugerð er að finna nánari ákvæði um starfsemi varasjóðsins svo sem um útreikning framlaga sjóðsins til sveitarfélaga vegna rekstrar félagslegra íbúða og sölu þeirra út á hinn almenna markað. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 19.9.2002

Framkvæmdir utan fjárhagsáætlunar, sala eigna án samþykkis hreppsnefndar. Lesa meira
 

Heimasíða átaks gegn verslun með konur opnuð - 13.9.2002

Á heimasíðunni má finna allar upplýsingar um sameiginlega átakið og átak í hverju ríki fyrir sig, s.s. markmið átaksins, mismunandi áherslur þess og mismunandi tengiliði. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 6.9.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 30.8.2002

Ákvörðun um breytingu á ráðningarsamningi fráfarandi bæjarstjóra, hæfi forseta bæjarstjórnar til þátttöku við afgreiðslu málsins. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 23.8.2002

Ákvörðun um niðurlagningu grunnskóla í dreifbýli, málsmeðferð. Lesa meira
 

Effektiv revision - vad är det och när - 23.8.2002

Í kjölfarið á þeim hneykslismálum sem nýlega hafa komið upp í Bandaríkjunum um bókhaldssvindl tveggja stórfyrirtækja, hafa vaknað ýmsar spurningar um gegnsæi bókhalds og ársreikninga fyrirtækja. Lesa meira
 

Húsnæðismál sveitarfélaga - 20.8.2002

Skýrsla nefndar til að fylgja eftir tillögum um félagsleg húsnæðismál sveitarfélaga.

Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 15.8.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Kaupskylda félagslegra eignaríbúða - 14.8.2002

Sveitarfélög sem hafa aflétt kaupskyldu sinni af félagslegum eignaríbúðum. Lesa meira
 

Varasjóður húsnæðismála tekur formlega til starfa - 1.8.2002

Með lögum nr. 86/2002, um breytingu á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál, með síðari breytingum, var lagður grunnur að starfrækslu nýs sjóðs, varasjóðs húsnæðismála. Lesa meira
 

Ógilding sveitarstjórnarkosninga í Borgarbyggð - 31.7.2002

Ráðuneytið hefur ákveðið með úrskurði uppkveðnum í gær að ógilda sveitarstjórnarkosningar sem fram fóru í Borgarbyggð 25. maí 2002. Lesa meira
 

Íbúatala að baki hverri barnaverndarnefnd - 25.7.2002

Ráðuneytið hefur sent öllum sveitarfélögum á landinu bréf þar sem vakin er athygli á því að íbúatala að baki hverri barnaverndarnefnd skuli ekki vera undir 1.500. Lesa meira
 

Bréf til sveitarfélaga - 23.7.2002

Sveitarfélög hafa frest til 1. september 2002 til að setja fjárhagsáætlun ársins fram á formi sem uppfyllir reglur reikningsskila- og upplýsinganefndar. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 12.7.2002

Álit ráðuneytisins varðandi valdmörk sveitarstjórnar og sameiginlegrar barnaverndarnefndar fjögurra sveitarfélaga og úrskurður um sveitarstjórnarkosningar 25. maí 2002. Lesa meira
 

Staðfest heiti sameinaðs sveitarfélags - 9.7.2002

Ráðuneytið hefur staðfest tillögu um heiti sveitarfélags sem varð til við sameiningu Gnúpverjahrepps og Skeiðahrepps. Lesa meira
 

Kærunefnd barnaverndarmála tók til starfa 1. júní 2002 - 1.7.2002

Kærunefnd barnaverndarmála er skipuð þremur mönnum sem tilnefndir eru til fjögurra ára í senn. Er formaður tilnefndur af hæstarétti en aðrir nefndarmenn af félagsmálaráðherra. Kærunefndin tók til starfa 1. júní 2002. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 28.6.2002

Úrskurður um sveitarstjórnarkosningar 25. maí 2002. Lesa meira
 

Staðfest nöfn sameinaðra sveitarfélaga - 25.6.2002

Félagsmálaráðuneytið hefur staðfest fimm nöfn sameinaðra sveitarfélaga og sent til birtingar í Stjórnartíðindum. Lesa meira
 

Stöndum vörð um æskuna - réttur barna til verndar - 24.6.2002

Erindi flutt á málþingi um réttindi barna, haldið á vegum félagsmálaráðuneytis í samstarfi við Barnaheill. Lesa meira
 

Kynjahlutfall nýkjörinna sveitarstjórnarmanna - 14.6.2002

Frá því í kosningunum 1998 hefur hlutfall kvenna aukist úr 28% í 31%. Lesa meira
 

Kjörsókn á landinu - 13.6.2002

Við síðustu sveitarstjórnarkosningar árið 1998 voru 193.492 á kjörskrá og þá greiddu 159.187 manns atkvæði, eða 82,3%, og er því lítill munur á kjörsókn milli áranna 1998 og 2002. Lesa meira
 

Meðalaldur nýkjörinna sveitarstjórnarmanna - 13.6.2002

Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins er meðalaldur nýkjörinna sveitarstjórnarmanna 45 ár. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 13.6.2002

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hefur birt fjóra nýja úrskurði. Lesa meira
 

Fréttabréf 1. tbl. 2002 - 11.6.2002

1. tbl. 2002
Meðal efnis: Nýr samningur um þjónustu við fatlaða, fækkun sveitarfélaga á kjörtímabilinu, helstu niðurstöður könnunar um daggæslu barna o. fl. Lesa meira
 

Ný framsetning fjárhagsáætlunar 2002 - 6.6.2002

Samkvæmt reglugerð nr. 721/2001 um breytingu á reglugerð nr. 944/2000 um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga hafa sveitarfélög frest til 1. september 2002 til að setja fjárhagsáætlun ársins fram á formi sem uppfyllir reglur reikningsskila- og upplýsinganefndar. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 6.6.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Úthlutanir Starfsmenntaráðs - 31.5.2002

Starfsmenntaráð hefur úthlutað styrkjum til 38 verkefna, samanlagt að upphæð kr. 48.740.000. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 30.5.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Undirbúningshópur sem skipuleggja á átak á Íslandi gegn verslun með konur (mansal) - 29.5.2002

Á fundi ráðherra jafnréttismála frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsþjóðunum hinn 15. júní 2001 sem átti sér stað á ráðstefnunni Konur og lýðræði (Women and Democracy) í Vilnius í Litháen var lögð fram tillaga um sameiginlega baráttu Norðurlandanna og Eystrasaltsþjóðanna gegn verslun með konur (mansal). Lesa meira
 

Breyting á lögum um húsnæðismál - 29.5.2002

Breytingarlög nr. 86/2002 á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, hafa tekið gildi. Ráðuneytið hefur ritað umburðarbréf vegna þessa. Lesa meira
 

Sameining felld á Austurlandi - 27.5.2002

Tillaga til sameiningar Austur-Héraðs og Fellahrepps var felld sl. laugardag. Fleiri íbúar Austur-Héraðs sögðu já, eða 970, en nei sögðu 180. Í Fellahreppi var meiri hluti sem sagði nei eða 125, en 117 sögðu já. Lesa meira
 

Úrslit sveitarstjórnarkosninga 2002 - 26.5.2002

Nú er unnt að nálgast úrslit úr nánast öllum sveitarfélögum á kosningavef ráðuneytisins. Lesa meira
 

Úrslit sveitarstjórnarkosninga 2002 - 25.5.2002

Úrslit kosninga hafa nú verið birt frá þrjátíu og tveimur sveitarfélögum á vefnum. Eingöngu hefur reynst unnt að birta úrslit frá tuttugu og fimm sveitarfélögum þar sem óbundin kosning fór fram og þeim sjö sveitarfélögum þar sem varð sjálfkjörið. Birting úrslita úr þeim sveitarfélögum þar sem bundin hlutfallskosning fór fram verður að bíða enn um sinn en úrslit í flestum þeirra eru birt á vef ríkisútvarpsins. Lesa meira
 

Feður og föðurhlutverkið - 24.5.2002

Fjölskylduráð og félagsmálaráðuneytið buðu til morgunverðarfundar um breytingar á föðurhlutverkinu og stöðu feðra á alþjóðlegum degi fjölskyldunnar 15. maí síðast liðinn. Setningarávarp félagsmálaráðherra og fleiri erindi flutt á fundinum. Lesa meira
 

Leiðbeiningar varðandi sölu félagslegra eignaríbúða - 13.5.2002

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, var samþykkt á Alþingi þann 2. maí sl. Eftir er að birta lögin í A-deild Stjórnartíðinda og taka lögin gildi eftir birtingu þeirra. Með 3. gr. laganna er sveitarfélögum nú heimilað að falla frá kaupskyldu á félagslegum eignaríbúðum. Lesa meira
 

Framboðslistar eru allir birtir á kosningavef ráðuneytisins - 10.5.2002

Nú hafa kjörstjórnir allra sveitarfélaga sent ráðuneytinu framboðslista síns sveitarfélags og eru þeir allir birtir á kosningavefnum. Lesa meira
 

Framboðslistar hafa nú verið birtir á kosningavef ráðuneytisins - 8.5.2002

Starfsfólk félagsmálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur unnið að því hörðum höndum síðustu dagana að safna saman upplýsingum um alla framboðslista og skrá þær upplýsingar til birtingar á kosningavefnum. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 7.5.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Erindi flutt á málþingi um launamun kynjanna er haldið var 28. febrúar 2002 - 7.5.2002

28. febrúar síðastliðinn var haldið málþing um launamun kynjanna á vegum félagsmálaráðuneytisins, Jafnréttisráðs, Jafnréttisstofu og Vinnumálastofnunar. Þau erindi sem þar voru flutt eru nú öll aðgengileg á netinu. Lesa meira
 

Samkomulag um rekstur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna - 7.5.2002

Þann 6. maí undirritaði félagsmálaráðherra nýtt samkomulag 13 aðila um rekstur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Samkomulagið gildir til 31. desember 2004. Lesa meira
 

Úrskurður um gildi framboðslista - 7.5.2002

Með bréfi, dags. 6. maí 2002, lögðu fulltrúar frá Bæjarmálafélaginu Hnjúkum fram stjórnsýslukæru þar sem kærður er úrskurður yfirkjörstjórnar Blönduóssbæjar að úrskurða ógildan framboðslista félagsins við sveitarstjórnarkosningar 25. maí 2002. Lesa meira
 

Framboðslistar verða birtir á kosningavef ráðuneytisins - 5.5.2002

Starfsfólk ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga vinnur nú að því að safna upplýsingum um framboðslista um allt land. Það mun taka nokkra daga að slá inn upplýsingar um alla frambjóðendur enda skipta þeir þúsundum á landinu öllu. Lesa meira
 

Þjónusta við fatlaða - 3.5.2002

Nýjar fréttir um stöðu mála í þjónustu við fólk sem býr við fötlun. Lesa meira
 

Nýsamþykkt lög frá Alþingi - 3.5.2002

Nokkur frumvörp ráðuneytisins hafa verið samþykkt sem lög frá Alþingi síðustu daga. Lögin munu verða birt á síðum ráðuneytisins þegar þau hafa verið birt í Stjórnartíðindum. Lesa meira
 

Breytingar á fjölda fulltrúa í sveitarstjórnum - 2.5.2002

Í allmörgum sveitarfélögum hafa verið samþykktar breytingar á fjölda kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn. Samkvæmt 12. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, skal kveðið á um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn í samþykkt um stjórn viðkomandi sveitarfélags og fer fjöldi fulltrúa eftir íbúafjölda. Lesa meira
 

Ný lög um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum - 30.4.2002

Alþingi samþykkti í gær, 29. apríl, ný lög um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum. Lögin öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum og falla þá úr gildi lög nr. 77/1993. Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla um sameiningu Fellahrepps og Austur-Héraðs - 29.4.2002

Ákveðið hefur verið að atkvæðagreiðsla muni fara fram samhliða sveitarstjórnarkosningum þann 25. maí n.k. um hvort sameina beri Fellahrepp og Austur-Hérað, í umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði, í eitt sveitarfélag. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 29.4.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Stöndum vörð um æskuna - 29.4.2002

Dagskrá málþings á vegum félagsmálaráðuneytis og Barnaheilla á Grand Hótel þriðjudaginn 30. apríl 2002 kl. 13.00-17.00. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 29.4.2002

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hefur birt fjóra nýja úrskurði. Lesa meira
 

Málþing um réttindi barna - 26.4.2002

Skráning á málþing um réttindi barna, haldið þriðjudaginn 30. apríl kl. 12.30-17.00. Lesa meira
 

Kirkjubólshreppur og Hólmavíkurhreppur sameinast - 19.4.2002

Þann 17. apríl 2002 staðfesti félagsmálaráðherra sameiningu Hólmavíkurhrepps og Kirkjubólshrepps. Þá er ljóst að sveitarfélögin verða 105 við komandi sveitarstjórnarkosningar. Lesa meira
 

Samningur um þjónustu við fatlaða - 19.4.2002

Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, og Albert Eymundsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar, undirrituðu í dag samning um framhald á þjónustu Sveitarfélagsins Hornafjarðar við fatlaða. Lesa meira
 

Opinn fundur um stefnuna við afgreiðslu atvinnu- og dvalarleyfa - 16.4.2002

Boðað er til opins fundar félagsmálaráðuneytis, Vinnumálastofnunar og Útlendingaeftirlits - um stefnuna við afgreiðslu atvinnu- og dvalarleyfa, miðvikudaginn 17. apríl 2002, kl. 15.00-17.00, í Borgartúni 6, Reykjavík. Lesa meira
 

Málþing á vegum félagsmálaráðuneytis og Barnaheilla - 15.4.2002

Skráning á málþing á vegum félagsmálaráðuneytis og Barnaheilla á Grand Hótel þriðjudaginn 30. apríl 2002 kl. 13.00-17.00. Lesa meira
 

Breyting á kosningalögum - 8.4.2002

Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998. Verið er að þýða hin nýju lög á ensku og stendur kynning fyrir dyrum meðal útlendinga á Íslandi. Lesa meira
 

Könnun á áhrifum og afleiðingum sameiningar sveitarfélaga - 8.4.2002

Á fundi í félagsmálaráðuneytinu þann 25. mars var kynnt viðamikil könnun sem Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri vann með tilstyrk félagsmálaráðuneytisins á áhrifum og afleiðingum sameiningar sveitarfélaga. Nú er hægt að nálgast einstakar skýrslur RHA á netinu. Lesa meira
 

Nýtt símanúmer félagsmálaráðuneytisins - 5.4.2002

Félagsmálaráðuneytið hefur fengið nýtt símanúmer 545 8100. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 2.4.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Auglýsing um sveitarstjórnarkosningar 2002 - 26.3.2002

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út auglýsingu um dagsetningar varðandi sveitarstjórnarkosningar 2002. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 18.3.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnamálum. Lesa meira
 

Frumvarp til barnaverndarmála - 18.3.2002

Helstu nýmæli í frumvarpi til barnaverndarlaga. Lesa meira
 

Fréttir á pólsku og serbó-króatísku á textavarpinu - 15.3.2002

Textavarpið hóf á miðvikudag, 13. mars, að birta fréttir á pólsku og serbó-króatísku og er það Fjölmenningarsetur á Vestfjörðum sem stendur að þessari þjónustu. Lesa meira
 

Sameiningarkosningar í mars 2002 - 8.3.2002

Minnt er á að atkvæðagreiðslur um sameiningu sveitarfélaga munu fara fram á þremur stöðum á landinu á næstunni. Lesa meira
 

Vinnuvernd á Íslandi - 21.2.2002

Leiðbeiningar fyrir erlenda starfsmenn um vinnuvernd á Íslandi. Lesa meira
 

Málþing um launamun kynjanna - 18.2.2002

Dagskrá málþings um launamun kynjanna sem haldið verður fimmtudaginn 28. febrúar. Lesa meira
 

Verkefnum reynslusveitarfélaga lauk formlega nú um áramótin 2001/2002 - 18.2.2002

Reynslusveitarfélög hafa frá árinu 1995 starfað á grundvelli laga um reynslusveitarfélög, nr. 82/1994. Á árinu 1999 var verkefnið framlengt um tvö ár með breytingarlögum nr. 114/1999. Lesa meira
 

Daggæsla barna í heimahúsum - 18.2.2002

Helstu niðurstöður könnunar um daggæslu barna í heimahúsum. Lesa meira
 

Sameining sveitarfélaga - 11.2.2002

Ráðuneytið staðfesti þann 6. febrúar 2002 sameiningu sex sveitarfélaga í austanverðri Rangárvallasýslu. Lesa meira
 

Ráðstefna um EES-samninginn og íslensk sveitarfélög - 4.2.2002

Þann 8. febrúar næstkomandi munu Samband íslenskra sveitarfélaga og utanríkisráðuneytið standa fyrir ráðstefnu um áhrif EES-samningsins á íslensk sveitarfélög. Ráðstefnan er öllum opin en markmið hennar er fyrst og fremst að veita sveitarstjórnarmönnum og öðrum stjórnendum sveitarfélaga yfirsýn yfir áhrif ESB og EES-samningsins á íslensk sveitarfélög. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 31.1.2002

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Opnum Kosningavefs - 25.1.2002

Félagsmálaráðherra opnaði í dag við formlega athöfn kosningavefinn kosningar2002.is, sem tileinkaður er sveitarstjórnarkosningum sem haldnar verða laugardaginn 25. maí 2002. Lesa meira
 

Uppreiknuð tekju- og eignarmörk vegna viðbótarlána og félagslegra leiguíbúða - 24.1.2002

Tekju- og eignarmörk viðbótarlána skv. 5. og 6. gr. reglugerðar um viðbótarlán nr. 783/1998, sbr. 395/2001, og félagslegra leiguíbúða skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur nr. 873/2001 hafa verið uppreiknuð til 1. janúar 2002. Lesa meira
 

Samningur um þjónustu við fatlaða - 24.1.2002

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, undirrituðu í dag samkomulag um þjónustu við íbúa sem um árabil hafa verið vistaðir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Kópavogi. Lesa meira
 

Fjárhagsaðstoð í velferðarsamfélagi - 21.1.2002

Fjárhagsaðstoð í velferðarsamfélagi, málþing á Grand Hótel í Reykjavík, föstudaginn 1. febrúar 2002. Lesa meira
 

Viðmið eftirlitsnefndar við árlega athugun árið 2001 - 18.1.2002

Skoðuð voru sérstaklega þau sveitarfélög þar sem framlegð sveitarsjóðs var lægri en 10% af skatttekjum og þar sem óráðstafaðar tekjur ársins 2000 voru neikvæðar. Lesa meira
 

Árleg athugun á fjárhagsstöðu sveitarfélaga - 18.1.2002

Í samræmi við 13. gr. reglugerðar um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, nr. 374/2001, hefur nefndin framkvæmt árlega athugun sína á fjárhagsstöðu sveitarfélaga sem byggð er á niðurstöðum ársreikninga þeirra ársins 2000 og fjárhagsáætlana fyrir árið 2001. Lesa meira
 

Breyting á reglugerð um lánaflokka Íbúðalánasjóðs - 10.1.2002

Félagsmálaráðherra hefur breytt reglugerð um lánaflokka Íbúðalánasjóðs, nr. 458/1999. Breytingareglugerðin hefur fengið númerið 1000/2001. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 3.1.2002

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála birtir þrjá nýja úrskurði. Lesa meira
 


Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica