Fréttir

Ráðherraskipti og sameining ráðuneyta - 2.9.2010

Guðbjartur Hannesson og Árni Páll Árnason

Guðbjartur Hannesson tók í dag við lyklum að félags- og tryggingamálaráðuneytinu úr hendi Árna Páls Árnasonar. Guðbjartur er einnig ráðherra heilbrigðismála og mun stýra sameiningu ráðuneytanna tveggja sem tekur gildi um næstu áramót.

Lesa meira
 

Framkvæmdir hefjast við byggingu hjúkrunarheimilis í Borgarbyggð - 27.8.2010

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýju hjúkrunarheimili í Borgarbyggð í gær. Framkvæmdir eru að hefjast og áformað að heimilið verði tekið í notkun sumarið 2012.

Lesa meira
 

Kærunefnd greiðsluaðlögunarmála skipuð - 26.8.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað kærunefnd greiðsluaðlögunarmála í samræmi við lög um greiðsluaðlögun einstaklinga og lög um tímabundið úrræði einstaklinga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota.

Lesa meira
 

Ný norræn upplýsingasíða um notendastýrða persónulega aðstoð - 26.8.2010

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, opnaði í gær norræna upplýsingasíðu um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fólk með fötlun. Allar Norðurlandaþjóðirnar stóðu saman að verkefninu undir stjórn Íslendinga.

Lesa meira
 

Réttur til atvinnuleysisbóta - 23.8.2010

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur lýst sig viljugan til að leggja fram frumvarp um að tíminn sem fólk á rétt til atvinnuleysisbóta verði lengdur tímabundið úr þremur árum í fimm. Þetta kom fram á samráðsfundi hans með aðilum vinnumarkaðarins sem haldinn var í júní síðastliðnum.

Lesa meira
 


Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica