ForsíðaSTJR-Fréttir

Umsóknarfrestur um embætti umboðsmanns skuldara liðinn

Alþingi samþykkti í júní frumvarp til laga um nýtt embætti umboðsmanns skuldara. Umboðsmaður skuldara er ríkisstofnun sem hefur það hlutverk að gæta hagsmuna og réttinda skuldara eins og nánar er kveðið á um í lögunum. Embættið mun einnig annast fjármálaráðgjöf við einstaklinga sem til þessa hefur verið sinnt af Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna en starfsemi hennar rennur inn í embætti umboðsmanns.

Embætti umboðsmanns skuldara var auglýst til umsóknar í lok júnímánaðar og rann umsóknarfresturinn út 12. júlí síðastliðinn. Mun starfsemi embættisins hefjast 1. ágúst næstkomandi.

Eftirtaldir sóttu um embættið:

  • Ásta Sigrún Helgadóttir
  • Guðmundur Ásgeirsson
  • Guðrún Hulda Aðils Eyþórsdóttir
  • Guðrún Jóhannsdóttir
  • Hallgrímur Þ. Gunnþórsson
  • Hólmsteinn A. Brekkan
  • Ólöf Dagný Thorarensen
  • Runólfur Ágústsson
  • Sif Jónsdóttir

Ráðið verður í starfið fyrir 1. ágúst.



Flýtival



Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica