Efnisorð
Tengingar á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins
Valið efni úr netfréttum 2001 - 2003 (ágúst) má finna í listanum sem og aðrar vefsíður.
Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í félags- og tryggingamálaráðuneytinu er stefnt að því að koma á einföldu og skilvirku velferðarkerfi sem þjónar öllum landsmönnum. Í þessu skyni er í ráðuneytinu unnið að því að marka nýja stefnu í málaflokkum þess, einfalda stofnanakerfið og samþætta þjónustu með hagsmuni notenda að leiðarljósi.
Opnuð hefur verið ný norræn upplýsingasíðu um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fólk með fötlun. Allar Norðurlandaþjóðirnar stóðu saman að verkefninu undir stjórn Íslendinga og er síðan vistuð á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins.
Aðalmarkmiðið með yfirfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga er að fagleg og fjárhagsleg ábyrgð verði samþætt á hendi eins aðila svo og að stuðla að samþættingu nærþjónustu við íbúa og efla félagsþjónustu sveitarfélaga.